Kennslur · Kennslur 6. hluti

SOTK – Drottinn blessaði elliár Jobs meir en æskuár hans

Drottinn blessaði síðari æviár Jobs meira en hin fyrri:

Jesaja 42:22

Og þó er þetta rændur og ruplaður lýður, þeir eru allir fjötraðir í gryfjum og byrgðir í myrkvastofum. Þeir eru orðnir að herfangi, og enginn frelsar þá, orðnir að ránsfeng, og enginn segir: "Skilið þeim aftur!"

Postulasagan 3:21

Hann á að vera í himninum allt til þess tíma, þegar Guð endurreisir alla hluti, eins og hann hefur sagt fyrir munn sinna heilögu spámanna frá alda öðli.

Í UPPHAFI: Maðurinn var skapaður með alla sína hæfileika í fullkomnu lagi.

Hann gat átt fullkomin samskipti við Guð

Hann gat tjáð Guð fullkomlega.

Tilfinningar hans, tal, hugur: vilji, auk líkamans og skilningarvitanna fimm ásamt anda hans voru að fullu samþætt og störfuðu í fullkomnu samræmi. Þegar syndin kom inn í mannkynið hófst hnignun. Guð hægði nokkuð á hnignuninni með því að takmarka ákveðna arfgenga þætti; á fjögurra kynslóða fresti voru sumir hlutir hreinsaðir út og stundum tók það tíu kynslóðir.

Fimmta Mósebók 23:2

Enginn bastarður má vera í söfnuði Drottins, jafnvel ekki tíundi maður frá honum má vera í söfnuði Drottins.

Önnur Mósebók 34:7

sem auðsýnir gæsku þúsundum og fyrirgefur misgjörðir, afbrot og syndir, en lætur þeirra þó eigi með öllu óhegnt, heldur vitjar misgjörða feðranna á börnum og barnabörnum, já í þriðja og fjórða lið."

Fimmta Mósebók 15:1

Sjöunda hvert ár skalt þú veita umlíðun skulda.

Guð varð að takmarka ýmislegt sem myndi hafa áhrif á komandi kynslóðir.

Stundum var þörf á mikilli leiðréttingu, eins og flóðinu á dögum Nóa.

Fyrsta Mósebók 6:5-6

Er Drottinn sá, að illska mannsins var mikil á jörðinni og að allar hugrenningar hjarta hans voru ekki annað en illska alla daga, -6- þá iðraðist Drottinn þess, að hann hafði skapað mennina á jörðinni, og honum sárnaði það í hjarta sínu.

Sálmarnir 14:1-3

Til söngstjórans. Davíðssálmur. Heimskinginn segir í hjarta sínu: "Guð er ekki til." Ill og andstyggileg er breytni þeirra, enginn gjörir það sem gott er. -2- Drottinn lítur af himni niður á mennina til þess að sjá, hvort nokkur sé hygginn, nokkur sem leiti Guðs. -3- Allir eru viknir af leið, allir spilltir, enginn gjörir það sem gott er - ekki einn.

Spámenn Gamla testamentisins boðuðu hins vegar endurreisn

Jesús kom og ruddi brautina til þess að endurreisnin gæti hafist. Krossinn var mikilvægur vendipunktur í sögunni og opnaði leið til að byrja alveg upp á nýtt. Þegar Jesús steig aftur upp til himna rann tímabil náðarinnar upp yfir heiminn.

Postulasagan 3:21

Hann á að vera í himninum allt til þess tíma, þegar Guð endurreisir alla hluti, eins og hann hefur sagt fyrir munn sinna heilögu spámanna frá alda öðli.

Nú segir orð Guðs að Jesús hafi snúið aftur til föðurins og muni ekki koma aftur fyrr en sú endurreisn sem spámennirnir töluðu um er fullkomnuð.

Orðið endurreisn hér þýðir bókstaflega á grísku: Gr. - Að koma aftur í upprunalegt horf.

HVAÐ SÖGÐU SPÁMENNIRNIR AÐ YRÐI ENDURREIST?

1

Jeremía 30:17

Ég mun láta koma hyldgan á sár þín og lækna þig af áverkum þínum - segir Drottinn - af því að þeir kalla þig "hina brottreknu," "Síon, sem enginn spyr eftir."

2

Sálmarnir 23:3

Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns.

Harmljóðin 5:21

Snú þú oss til þín, Drottinn, þá snúum vér við, lát þú daga vora aftur verða eins og forðum!

3

Míka 4:8

En þú, varðturn hjarðmannsins, hæð dótturinnar Síon, til þín mun koma og aftur til þín hverfa hið forna veldi, konungdómur dótturinnar Jerúsalem.

1. Þessaloníkubréf 5:23

En sjálfur friðarins Guð helgi yður gjörsamlega og andi yðar, sál og líkami varðveitist alheil og óaðfinnanleg við komu Drottins vors Jesú Krists.

Gr. Óaðfinnanleg. Líkami, sál, andi

Það er ætlun Guðs að líkami þinn, sál og andi verði fullkomlega endurreist fyrir endurkomu hans, sem er full endurlausn á anda, sál og líkama.

Rómverjabréfið 8:11

Ef andi hans, sem vakti Jesú frá dauðum, býr í yður, þá mun hann, sem vakti Krist frá dauðum, einnig gjöra dauðlega líkami yðar lifandi með anda sínum, sem í yður býr.

2. Korintubréf 4:10

Jafnan berum vér dauða Jesú á líkamanum, til þess að einnig líf Jesú opinberist í líkama vorum.

11

Því að vér, sem lifum, erum stöðugt framseldir til dauða vegna Jesú, til þess að einnig líf Jesú opinberist í dauðlegu holdi voru.

SÁLIN AÐ FULLU ENDURREIST

Hugurinn fullkomlega læknaður og endurreistur, að minnsta kosti níu tíundu hlutar hans þarfnast endurreisnar:

Hvert áfall, hvert alvarlegt sjokk sem hefur skaðað tilfinningar þínar. Áhrif ofbeldis eða misnotkunar sem þú hefur orðið fyrir í lífinu, sérhver stífla í huga þínum.

GUÐ SAGÐI: ÉG MUN ENDURREISA:

Guð lofaði þessari kynslóð að hann myndi bæta upp árin sem hafa leikið ykkur grátt.

Jóel 2:23-25; 3:1-4

Og þér Síonbúar, fagnið og gleðjist í Drottni, Guði yðar, því að hann gefur yður regn í réttum mæli og lætur skúrirnar ofan til yðar koma, haustregn og vorregn, eins og áður. -24- Láfarnir verða fullir af korni, og vínberjalögurinn og olían flóa út af þrónum. -25- Ég bæti yður upp árin, er átvargurinn, flysjarinn, jarðvargurinn og nagarinn átu, - minn mikli her, er ég sendi móti yður. -3:1- En síðar meir mun ég úthella anda mínum yfir allt hold. Synir yðar og dætur yðar munu spá, gamalmenni yðar mun drauma dreyma, ungmenni yðar munu sjá sjónir. -2- Já, einnig yfir þræla og ambáttir mun ég á þeim dögum úthella anda mínum. -3- Og ég mun láta tákn verða á himni og á jörðu: blóð, eld og reykjarstróka. -4- Sólin mun snúast í myrkur og tunglið í blóð, áður en hinn mikli og ógurlegi dagur Drottins kemur.

Tími endurreisnar er kominn, þetta er ár endurreisnar

Mengun syndarinnar kann að hafa tekið sinn toll í lífi þínu og leitt til þess að þú hefur glatað færni þinni; líkamlegir kvillar, skaðaðar tilfinningar og laskað hugarfar gætu verið að halda aftur af þér. Þú segir: Ég bar ekki ábyrgð á þessu: Brotið var á mér. Mér var hafnað og það hefur tekið sinn toll af mér. Fyrirgefðu skilyrðislaust öllum sem hafa sært þig. Ekki nota frasann: Ég verð aldrei aftur eins. Það er lygi.

Guð segir: Ég mun endurreisa árin sem óvinurinn hefur rænt frá ykkur

Jeremía spáði glötun og herleiðingu vegna synda fólksins. En margir voru saklausir. Daníel iðraðist þessara synda fólksins.

Daníel 9:4-5

Ég bað til Drottins, Guðs míns, gjörði játningu mína og sagði: "Æ, Drottinn, þú mikli og ógurlegi Guð, sem heldur sáttmálann og miskunnsemina við þá, sem elska hann og varðveita boðorð hans. -5- Vér höfum syndgað og illa gjört, vér höfum breytt óguðlega og verið þér mótsnúnir og vikið frá boðum þínum og setningum.

Daníel var aðeins á unglingsaldri þegar hann var herleiddur; jafnvel þótt það hefðu verið forfeður hans sem áttu sök á herleiðingunni þá tók Daníel sjálfan sig með í iðrunarbæninni.

Spámaðurinn Hósea sagði að við ættum að nota orð til að iðrast og leyfa Guði að endurreisa okkur.

Hósea 14:1-2

Samaría fær að gjalda þess, að hún hefir sett sig upp á móti Guði sínum. Fyrir sverði skulu þeir falla, ungbörnum þeirra skal slegið verða niður við og þungaðar konur þeirra ristar verða á kvið. -2- Snú þú við, Ísrael, til Drottins, Guðs þíns, því að þú steyptist fyrir misgjörð þína.

Þetta er mikil árstíð endurreisnar; við verðum að ganga inn í hana á meðan vatnið er hrært, þetta er tími náðar Drottins.

Jesaja 60:10

Útlendir menn munu hlaða upp múra þína og konungar þeirra þjóna þér, því að í reiði minni sló ég þig, en af náð minni miskunna ég þér.

Guð segir: Kallaðu á mig og ég mun sýna þér náð.

Fyrri Kroníkubók 4:10

Og Jaebes ákallaði Guð Ísraels og mælti: "Blessa þú mig og auk landi við mig, og verði hönd þín með mér, og bæg þú ógæfunni frá mér, svo að engin harmkvæli komi yfir mig." Og Guð veitti honum það, sem hann bað um.

Jóhannesarguðspjall 5:4

En engill Drottins fór öðru hverju niður í laugina og hrærði vatnið. Sá sem fyrstur fór ofan í eftir hræring vatnsins, varð heill, hvaða sjúkdómur sem þjáði hann.]

Vatnið er hrært, Guð segir: Ég mun endurreisa.

Guð blessi þig!

Skráðu þig á póstlistann

Við sendum þér svo tilkynningu þegar nýtt efni kemur á síðuna, ásamt öðrum gagnlegum upplýsingum sem tengjast Ljós í myrkri.