Kennslur · Kennslur 6. hluti

SOTK – Ár Drottins

Fimmta Mósebók 31:10

Og Móse lagði svo fyrir þá: "Sjöunda hvert ár, umlíðunarárið, á laufskálahátíðinni,

NÚ EÐA ALDREI

Þetta voru orðin sem ég vaknaði við á nýársdag.

Eftirfarandi er stutt samantekt á spámannlegri reynslu sem ég átti með Drottni.

Þær ákvarðanir sem við tökum á þessu ári, og þá sérstaklega á fyrsta ársfjórðungi þess, munu hafa djúpstæð áhrif á næstu fjórtán ár ævi okkar.

Það er vel þekkt að sum ár skipta meira máli en önnur hvað varðar áhrifin sem þau hafa á líf okkar. Ég get litið um öxl yfir farinn veg og bent á ákveðin ár í lífi mínu þar sem ákvarðanirnar sem ég tók skiptu sköpum og afleiðingarnar urðu óafturkræfar. Tíðir og tímar eru hluti af því hvernig Guð starfar með okkur. Tækifæri koma og fara. Guð takmarkar sig við tíðir og tíma í því hvernig hann umgengst okkur, og ef við förum á mis við ákveðið tímabil í Guði geta mörg ár farið til spillis.

Prédikarinn 3:1

Öllu er afmörkuð stund, og sérhver hlutur undir himninum hefir sinn tíma.

Lúkasarguðspjall 19:42-44

og sagði: "Ef þú hefðir aðeins vitað á þessum degi, hvað til friðar heyrir! En nú er það hulið sjónum þínum. -43- Því að þeir dagar munu koma yfir þig, að óvinir þínir munu gjöra virki um þig, setjast um þig og þröngva þér á alla vegu. -44- Þeir munu leggja þig að velli og börn þín, sem í þér eru, og ekki láta standa stein yfir steini í þér, vegna þess að þú þekktir ekki þinn vitjunartíma."

Sjö ár af spámannlegum yfirlýsingum

Frá árinu 1999 byrjaði Guð að mæla mörg skýr orð fyrir munn postula sinna og spámanna um breytingar og komandi vakningu. Margar viðvaranir voru veittar og mörg skýr spámannleg orð voru flutt um að heilagleika væri þörf. Síðustu sjö ár hafa verið alveg einstök hvað varðar þá spámannlegu opinberun sem kirkjunni hefur verið gefin. Fyrir fjórum árum, þegar ég var að þjóna í Bandaríkjunum, talaði Drottinn til mín og sagði að hann gæti ekki sent vakningu vegna þess að kirkjan væri ekki tilbúin fyrir hana. Það sem er ógnvekjandi er að nýtrúaðir sem þú gerir að lærisveinum munu verða nákvæmlega eins og þú; líkt elur af sér líkt. Þess vegna hefur kall til heilagleika verið eitt skýrasta spámannlega kallið síðastliðin sjö ár. Engu að síður mun Guð ekki bíða lengur, ÞAÐ ER NÚ EÐA ALDREI.

Vakning nálgast og henni verður ekki frestað lengur

Ég fékk tölvupóst frá vini mínum sem er prestur, þar sem hann sagði mér frá draumi sem hann var nýbúinn að dreyma. Í draumnum sagði Drottinn honum að mikil vakning sem myndi skekja borgina væri á leiðinni þangað, og að hún kæmi á morgun. Starfsfólk safnaðarins sagði honum að þau væru ekki tilbúin sökum skorts á skipulagslegum undirbúningi. Presturinn sagði: „Frestum vakningunni þar til við getum undirbúið okkur.“ Þá sagði Drottinn: „NEI, HÚN KEMUR Á MORGUN.“ Orðið „bráðum“ í orðabók Guðs getur þýtt að nokkuð langt sé í land, en „á morgun“ er afar stutt.

Guð ætlar ekki að bíða neitt lengur. Hvort sem þið eruð tilbúin eða ekki, þá kem ég.

Þegar vinur minn vaknaði af draumnum var klukkan 04:08

Drottinn bauð honum þá að lesa Jakobsbréfið 4:8.

Jakobsbréfið 4:8

Nálægið yður Guði, og þá mun hann nálgast yður. Hreinsið hendur yðar, þér syndarar, og gjörið hjörtun flekklaus, þér tvílyndu.

Nálægið ykkur Guði og hann mun nálgast ykkur sem aldrei fyrr. Hreinsið hendur yðar og gjörið hjörtun hrein.

Hendurnar tákna starf okkar fyrir Guð og samskipti okkar við annað fólk. Hjörtu okkar tala fyrst og fremst um hvatir okkar. Þegar hjarta okkar er hreint er allt hreint.

Í miskunn sinni mun Guð bíða eftir okkur; en ekki að eilífu

Jesaja 30:18a

Enn bíður Drottinn þess að geta miskunnað yður,

Sálmarnir 32:6

Þess vegna biðji þig sérhver trúaður, meðan þig er að finna. Þótt vatnsflóðið komi, nær það honum eigi.

Á dögum Nóa fæddist Metúsúla, sonur Enoks. Flestir hebreskufræðingar telja að nafn hans þýði „þegar hann er dáinn mun það koma“. Hvað mun koma? Hvað hafði Enok séð? Hvers vegna gaf hann syni sínum þetta nafn? Hann sá hið mikla flóð sem koma skyldi og vissi fyrir spádómsanda að það myndi ekki skella á fyrr en Metúsúla dæi.

Fyrsta Mósebók 5:27

Og allir dagar Metúsala voru níu hundruð sextíu og níu ár, þá andaðist hann.

Metúsúla gat ekki dáið á meðan Guð beið þess að fólkið gæfi sér tíma til að snúa aftur til hans. Miskunn Guðs var sífellt framlengd og Metúsúla varð æ eldri, þar til hann varð elsti maður sem lifað hefur. Hann gat ekki dáið á meðan Guð beið. Í miskunn sinni hélt Guð áfram að framlengja tímann, en þó ekki að eilífu. Tími Guðs rann út og Metúsúla dó; það ár kom flóðið.

Fyrra Pétursbréf 3:20

Þeir höfðu óhlýðnast fyrrum, þegar Guð sýndi langlyndi og beið á dögum Nóa meðan örkin var í smíðum. Í henni frelsuðust fáeinar - það er átta - sálir í vatni.

Enok, spámaður Guðs, hafði innsýn í tímasetningar náðar og miskunnar Guðs. Sömuleiðis í dag: ef þér heyrið raust hans, forherðið þá ekki hjörtu yðar.

Hebreabréfið 4:1

Fyrirheitið um það að ganga inn til hvíldar hans stendur enn, vörumst því að nokkur yðar verði til þess að dragast aftur úr.

Hebreabréfið 4:7

Því ákveður Guð aftur dag einn, er hann segir löngu síðar fyrir munn Davíðs: "Í dag." Eins og fyrr hefur sagt verið: "Ef þér heyrið raust hans í dag, þá forherðið ekki hjörtu yðar."

Tilbúin eða ekki, hann kemur

Þær ákvarðanir sem þú tekur á þessu ári munu ákvarða næstu fjórtán ár ævi þinnar.

Veldu af skynsemi. Það er ekki nóg að vera í hinum leyfilega vilja Guðs; þú verður að finna fullkominn vilja Guðs fyrir líf þitt og byrja að ganga í honum.

Það er ekki lengur tími fyrir aðra ferð umhverfis fjallið, eins og Ísraelsmenn fóru svo oft, með þeim afleiðingum að ein heil kynslóð dó í eyðimörkinni.

Fimmta Mósebók 15:1

Sjöunda hvert ár skalt þú veita umlíðun skulda.

Þetta ár getur orðið fagnaðarár fyrir þig. Þetta er ár lausnar, ár þar sem þú uppskerð það sem þú hefur sáð, ár til að sigra óvininn og ár þar sem þú getur færst upp á næsta stig í Guði. Þetta ár markar upphaf að uppfyllingu þess sem sannir spámenn hafa boðað síðastliðin sjö ár. Það er kominn tími til að leysa út loforð þín og sækja fram á hærri mið.

2007 - Ár lausnar fyrir þá sem trúa

Guð blessi þig!

Skráðu þig á póstlistann

Við sendum þér svo tilkynningu þegar nýtt efni kemur á síðuna, ásamt öðrum gagnlegum upplýsingum sem tengjast Ljós í myrkri.