Kennslur · Kennslur 6. hluti
SOTK – Allt samverkar til góðs

Rómverjabréfið 8:28-32
Vér vitum, að þeim, sem Guð elska, samverkar allt til góðs, þeim sem kallaðir eru samkvæmt ákvörðun Guðs. -29- Því að þá, sem hann þekkti fyrirfram, hefur hann og fyrirhugað til þess að líkjast mynd sonar síns, svo að hann sé frumburður meðal margra bræðra. -30- Þá sem hann fyrirhugaði, þá hefur hann og kallað, og þá sem hann kallaði, hefur hann og réttlætt, en þá sem hann réttlætti, hefur hann einnig vegsamlega gjört. -31- Hvað eigum vér þá að segja við þessu? Ef Guð er með oss, hver er þá á móti oss? -32- Hann sem þyrmdi ekki sínum eigin syni, heldur framseldi hann fyrir oss alla, hví skyldi hann ekki líka gefa oss allt með honum?
Allt samverkar til góðs
Hvernig eigum við að túlka þetta?
Er þetta raunverulega satt? Hvað þýðir þetta? Eigum við að taka öllu sem mætir okkur í lífinu og samþykkja það sem eitthvað sem mun verða okkur til góðs? Eitt af þeim vandamálum sem við glímum við og er hluti af fallna eðli okkar er þetta: Við eigum það til að annaðhvort andleggera eða flokka sem dæmisögu allt sem við skiljum ekki eða sem mun kosta okkur eitthvað. Fallna eðlið okkar leitar alltaf að auðveldu undankomuleiðinni, þeirri sem kostar minnst. Samverkar allt sem hendir okkur raunverulega okkur til góðs?
Annaðhvort-eða heilkennið
Þetta heilkenni lýsir sér í þeim hörðu og ósveigjanlegu afstöðum sem fólk tekur gagnvart sannleikanum eða kenningum. „Aldrei að gefa eftir“ eru einkunnarorð þessa fólks. Þar er ekki hægt að mætast á miðri leið; hlutirnir eru annaðhvort réttir eða rangir. Tökum sem dæmi deiluna um þessar tvær andstæðu skoðanir: „Einu sinni frelsaður, ávallt frelsaður“ og „Þú getur verið frelsaður en samt fallið frá og endað í helvíti“. Þú hefur val, annaðhvort þetta eða hitt. En hvað ef bæði sjónarmiðin væru rétt og bæði röng? Trúarandinn reynir hins vegar alltaf að þröngva okkur út í kreddufasta öfgastöðu.
Önnur öfgastaðan er sú að enginn geti slitið þig úr hendi Guðs eftir að þú hefur frelsast. Hins vegar gleymir þetta fólk því jafnan þegar því hentar að maðurinn hefur um aldur og ævi frjálsan vilja og að frelsaður einstaklingur getur kosið að snúa baki við Guði, afneitað honum og endað í eilífri glötun.
Jóhannesarguðspjall 10:28
Ég gef þeim eilíft líf, og þeir skulu aldrei að eilífu glatast, og enginn skal slíta þá úr hendi minni.
Hebreabréfið 6:4-6
Ef menn eru eitt sinn orðnir upplýstir og hafa smakkað hina himnesku gjöf, fengið hlutdeild í heilögum anda -5- og reynt Guðs góða orð og krafta komandi aldar, -6- en hafa síðan fallið frá, þá er ógerlegt að endurnýja þá til afturhvarfs. Þeir eru að krossfesta Guðs son að nýju og smána hann.
ALLT SAMVERKAR TIL GÓÐS: Í ALVÖRU?
Já, í alvöru: Skoðum samhengið sem þetta var skrifað í
Rómverjabréfið 8:26-28
Þannig hjálpar og andinn oss í veikleika vorum. Vér vitum ekki, hvers vér eigum að biðja eins og ber, en sjálfur andinn biður fyrir oss með andvörpum, sem ekki verður orðum að komið. -27- En hann, sem hjörtun rannsakar, veit hver er hyggja andans, að hann biður fyrir heilögum eftir vilja Guðs. -28- Vér vitum, að þeim, sem Guð elska, samverkar allt til góðs, þeim sem kallaðir eru samkvæmt ákvörðun Guðs.
Jæja: Á undan ritningarstaðnum um að allt samverki til góðs koma ritningargreinar sem tala um þörfina á því að biðja og ganga fram í bæn á öðrum tungum, einfaldlega vegna þess að við vitum ekki hvernig eða fyrir hverju við eigum að biðja, né hvað við þurfum raunverulega á að halda. Hversu mikið hefur þú beðið í andanum í þessari viku?
Athugið: Þeim sem elska Guð, þeim sem kallaðir eru samkvæmt ákvörðun hans.
Þegar við tökum þá ákvörðun að fylgja Drottni, hlýða honum og ganga á hans vegum, þ.e.a.s. að elska Drottin, mun tilgangur Guðs raungerast í lífi okkar. Sama hvað á dynur, mun hann snúa því okkur til góðs. Með sínum óendanlega skilningi á því hvað við þurfum út frá eilífðarsjónarmiði, mun hann leyfa það sem er nauðsynlegt til að móta okkur fyrir eilíf örlög okkar.
Ein af verstu birtingarmyndum trúarandans er að álykta um og dæma aðra með því að segja að ákveðnir hlutir hafi komið fyrir þá vegna syndar í lífi þeirra. Prófaðu að segja Job það:
Jobsbók 1:8
Og Drottinn mælti til Satans: "Veittir þú athygli þjóni mínum Job? því að enginn er hans líki á jörðu, maður ráðvandur og réttlátur, guðhræddur og grandvar."
Ég hef verið hjá afar mörgum þegar þeir létust. Gömlu fólki, unglingum, ungbörnum, sumum við skelfilegar aðstæður að því er virðist, en öðrum í hrumleika ellinnar. Fyrir löngu hætti ég að spyrja hvers vegna! Guð veit hvað hann er að gera, jafnvel þótt við getum ekki skilið það.
Að greina á milli prófrauna frá Guði og áþjánar frá óvininum.
Ég hef heyrt fólk segja: „Börnin mín eru í fíkniefnum, lauslæti og uppreisn. Þetta er raun sem ég verð að bera eða kross sem ég verð að bera!“
Það er ekki kross sem þú þarft að bera, það er bardagi sem þú þarft að vinna
Krossinn sem þú þarft að bera er sá að afneita sjálfum þér um kröfur holdsins:
Matteusarguðspjall 16:24-25
Þá mælti Jesús við lærisveina sína: "Hver sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér, taki kross sinn og fylgi mér. -25- Því að hver sem vill bjarga lífi sínu, mun týna því, og hver sem týnir lífi sínu mín vegna, mun finna það.
Þú verður að berjast fyrir börnin þín. Í morgun vaknaði ég með höfuðverk sem nálgaðist það að vera mígreni. Ég átti annasaman dag framundan og þurfti alls ekki á þessu að halda. Við höfum mætt gríðarlega mikilli andstöðu frá óvininum vegna kaupanna á landinu undir Ljósakademíuna, og sú andstaða er á mjög háu stigi. Ég ákvað að ég hefði fengið nóg og yrði að spyrna við fótum og tryggja eignina sem við búum á.
Við meðtókum kvöldmáltíðina og geymdum svolítið af víninu til að vernda eignina. Ég gekk allan hringinn meðfram lóðarmörkum eignarinnar, sem er ein ekra að stærð, og smurði víninu, blóði Jesú, á hvern hornstaur á lóðinni. Síðan lýsti ég því yfir að óvinurinn gæti ekki farið yfir blóðlínuna og inn á eignina. Innan hálftíma var mígrenið farið. Eins og þú sérð var þetta enginn prófsteinn frá Guði, þetta var andstaða við tilgang Guðs fyrir okkur.
NÚ: Guð leyfir vissulega að raunir komi inn í líf okkar. Þetta eru prófsteinar í skóla andans þar sem Guð leitast við að móta okkur og samræma lundarfar okkar hinum eina mælikvarða sem Guð setur okkur; „ávexti andans“. Guð hefur meiri áhuga á því hvers konar manneskja þú ert en hverju þú getur áorkað.
Fyrra Pétursbréf 4:12-13
Þér elskaðir, látið yður eigi undra eldraunina, sem yfir yður er komin yður til reynslu, eins og yður hendi eitthvað kynlegt. -13- Gleðjist heldur er þér takið þátt í píslum Krists, til þess að þér einnig megið gleðjast miklum fögnuði við opinberun dýrðar hans.
En í miðjum raunum skaltu ekki syndga; stenstu prófið.
Fyrra Pétursbréf 4:15
Enginn yðar líði sem manndrápari, þjófur eða illvirki eða fyrir að hlutast til um það, er öðrum kemur við.
Guð mun leyfa aðstæður í lífi okkar sem leiða í ljós hvernig við erum í raun og veru.
Þú verður að muna þetta:
Þú átt aðeins það í Guði sem þú getur haldið fast í undir álagi
Til þess að Drottinn geti fest ávöxt friðarins í sessi í lífi ykkar þurfið þið að mæta því sem ekki stuðlar að friði. Þrír listamenn voru beðnir um að mála mynd sem lýsti friði. Einn málaði friðsæla mynd af lygnu vatni í fullkomnu umhverfi. Annar málaði mynd af eyðimörk þar sem mild gola lék um og birtan var fínlega dregin fram á sandöldunum. Þriðji maðurinn málaði beljandi foss sem steyptist niður gríðarstórt hamrabelti með miklum gný. Trjágrein hafði vaxið út úr klettinum miðja vegu niður fossinn og teygði sig þvert fyrir vatnsflauminn. Á enda greinarinnar sat fugl sofandi á hreiðri sínu. Getið þið giskað á hver vann keppnina?
Guð mun bæði skapa og leyfa aðstæður í lífi ykkar sem verða hvati að því að fullkomna ávöxtinn í ykkur. Lífið er ekki sanngjarnt, við lifum í föllnum heimi, en það sem skiptir máli er ekki það sem kemur fyrir ykkur, heldur hvernig þið bregðist við því. Við þekkjum öll máltækið; það er ekki það sem þú borðar sem skaðar þig, heldur það sem nagar þig að innan. Að verða sammóta mynd Jesú er ferli sem við getum lært af hratt eða hægt, allt eftir viðbrögðum okkar við óréttlæti, áföllum, ósanngirni og öðru slíku sem mætir okkur í lífinu.
Ljóðaljóðin lýsa þessu vel
Ljóðaljóðin 4:12-16
Lokaður garður er systir mín, brúður, lokuð lind, innsigluð uppspretta. -13- Frjóangar þínir eru lystirunnur af granateplatrjám með dýrum ávöxtum, kypurblóm og nardusgrös, -14- nardus og krókus, kalamus og kanel, ásamt alls konar reykelsisrunnum, myrra og alóe, ásamt alls konar ágætis ilmföngum. -15- Þú ert garðuppspretta, brunnur lifandi vatns og bunulækur ofan af Líbanon. -16- Vakna þú, norðanvindur, og kom þú, sunnanblær, blás þú um garð minn, svo að ilmur hans dreifist. Unnusti minn komi í garð sinn og neyti hinna dýru ávaxta hans.
Ljóðaljóðin 5:1
Ég kom í garð minn, systir mín, brúður, ég tíndi myrru mína og balsam. Ég át hunangsköku mína og hunangsseim, ég drakk vín mitt og mjólk. Etið, vinir, drekkið, gjörist ástdrukknir.
Lífi okkar er hér lýst sem garði þar sem Drottinn elskar að koma til að smakka ávöxt garðsins.
Norðanvindurinn er hins vegar nauðsynlegur til þess að ávöxturinn nái fullum þroska. Norðanvindurinn var mjög kaldur og hvass vindur, alls ekki þægilegur, en engu að síður nauðsynlegur til þess að þroska ávöxtinn. Sunnanvindurinn var mjög þurr og lýjandi vindur sem herti plönturnar.
Allt þetta samverkar okkur til góðs við að móta okkur eftir líkingu Jesú og laða fram ávöxt andans í lífi okkar.
Guð blessi þig!
