Gjafir

Með þínum stuðning hjálpar þú Ljós í myrkri að miðla fagnaðarerindinu á íslensku. Kristilegt trúboð sem lifir og mun lifa á veraldarvefnum um ókomin ár!

Styrktu starfið

Ljós í myrkri miðlar fagnaðarerindinu á íslensku og allt efnið er öllum opið, án endurgjalds. Það er mögulegt vegna fólks sem gefur.

Takk fyrir að vera hluti af starfinu!

  • Greinar og kennslur – efni sem er öllum opið, án endurgjalds
  • Þýðingar – kristilegt efni þýtt á vandaða og auðlesna íslensku
  • Myndbönd – kennslur og stutt myndbönd fyrir vefinn og samfélagsmiðla
  • Bæn – við biðjum fyrir bænarefnum sem okkur berast

Leggja inn á reikning

Reikningur115-26-3357
Kennitala440610-0210

Hægt er að gefa staka gjöf eða setja upp mánaðarlega millifærslu í heimabankanum.

„Guð elskar glaðan gjafara.“ (2Kor 9:7)

Guð býður okkur að ganga út á vatnið og treysta honum fyrir öllu sem viðkemur okkar lífi. Treystir þú Honum fyrir fjármunum þínum? Trúir þú að ef þú fylgir Orðinu í að gefa þá muni Guð blessa þig?

Tíund

  • Hver? – Sá sem vill ganga með Guði og fylgja Orðinu.
  • Hvenær? – Í hvert skipti sem við fáum innkomu.
  • Hvað? – Einn tíunda af upphæð (10%).
  • Hvar? – Þar sem við fáum okkar andlegu fæðu.
  • Hvernig? – Staðfastlega, í trú, með gleði í hjarta.

En vei yður, þér farísear! Þér gjaldið tíund af myntu og rúðu og alls kyns matjurtum, en hirðið ekki um réttlæti og kærleika Guðs. Þetta ber að gjöra og hitt eigi ógjört að láta.
— Lúk 11:42

Tigna Drottin með eigum þínum og með frumgróða allrar uppskeru þinnar, þá munu hlöður þínar verða nægtafullar og vínberjalögurinn flóa út af vínlagarþróm þínum.
— Orðskv 3:9-10

Fórnargjafir

  • Hver? – Sá sem vill ganga með Guði og fylgja Orðinu.
  • Hvenær? – Þegar andinn leiðir okkur til þess að gefa.
  • Hvað? – Spyrja Guð hve mikið í hvert skipti, og fylgja hjartanu.
  • Hvernig? – Staðfastlega, í trú, með gleði í hjarta.

Gefið, og yður mun gefið verða. Góður mælir, troðinn, skekinn, fleytifullur mun lagður í skaut yðar. Því með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður aftur mælt verða.
— Lúk 6:38

Sjá einnig:

Skráðu þig á póstlistann

Við sendum þér svo tilkynningu þegar nýtt efni kemur á síðuna, ásamt öðrum gagnlegum upplýsingum sem tengjast Ljós í myrkri.