Kennslur · Kennslur 6. hluti

SOTK – Að fara á næsta stig 5. hluti – Himinninn gerir innrás á jörðina

Dómarabókin 5:20

Af himni börðust stjörnurnar, af brautum sínum börðust þær við Sísera,

Síðari Kroníkubók 7:1

Þegar Salómon hafði lokið bæn sinni, kom eldur af himni og eyddi brennifórninni og sláturfórninni, og dýrð Drottins fyllti húsið.

Postulasagan 2:2-4

Varð þá skyndilega gnýr af himni eins og aðdynjanda sterkviðris og fyllti allt húsið, þar sem þeir voru. -3- Þeim birtust tungur, eins og af eldi væru, er kvísluðust og settust á hvern og einn þeirra. -4- Þeir fylltust allir heilögum anda og tóku að tala öðrum tungum, eins og andinn gaf þeim að mæla.

Við höfum nýverið orðið vitni að stærstu sólgosum sem nokkurn tíma hafa verið skráð síðan byrjað var að halda utan um þetta fyrirbæri.

Guð sagði skýrt og greinilega að hann myndi gefa okkur tákn á himnum. Þegar við sjáum óvenjuleg eða fátíð fyrirbæri gerast á himnum þurfum við að veita því athygli; það er rödd Guðs til þeirra sem eru vakandi.

Sálmarnir 19:2-4

Himnarnir segja frá Guðs dýrð, og festingin kunngjörir verkin hans handa. -3- Hver dagurinn kennir öðrum, hver nóttin boðar annarri speki. -4- Engin ræða, engin orð, ekki heyrist raust þeirra.

Eldur í orði Guðs talar um hreinsun, dóm, heilagan anda

Sumir englar bera nöfn sem merkja brennandi andar.

Jesaja 6:6

Einn serafanna flaug þá til mín. Hann hélt á glóandi koli, sem hann hafði tekið af altarinu með töng,

Nafnið serafar merkir brennandi andar: 8314. saraph, saw-rawf'; frá H8313; brennandi,

Jesaja 4:4

Þá er Drottinn hefir afþvegið óhreinindi Síonardætra og hreinsað blóð Jerúsalemborgar af henni með refsidómsanda og hreinsunaranda,

HB Serafar

Við erum í þann mund að sjá nýja og kröftuga bylgju frá himni sem mun bera með sér dóm, hreinsun og nýja og máttuga smurningu heilags anda. Eldskírn mun brátt úthellast yfir þá sem leita Drottins og eru honum algjörlega ofurseldir.

Þetta mun færa okkur langt fram yfir skírn í heilögum anda og opna nýja vídd krafts sem verður undanfari nýrrar og máttugrar trúboðssóknar.

Þeir sem hafa sagt að við höfum stritað í alla nótt og ekkert fengið munu forviðast yfir sálnauppskerunni.

Þessi hreinsun sem mun eiga sér stað greiðir veg Drottins í lífi okkar og opnar fyrir nýja og kröftuga samfylgd með honum.

Guð mun brátt svara með eldi og eyða fórn lífs okkar til að leiða okkur á stað hreinleika og meiri samhljóms við sig, og gera þannig göngu okkar með honum kraftmikla og einkar gefandi.

Síðari Kroníkubók 7:1

Þegar Salómon hafði lokið bæn sinni, kom eldur af himni og eyddi brennifórninni og sláturfórninni, og dýrð Drottins fyllti húsið.

Guð er að verki sem aldrei fyrr á okkar dögum. Höldum áfram að sækja fram, verum vakandi og skiljum tákn tímanna. Miklar dyr standa opnar fyrir fólki Guðs og við þurfum að ganga þar inn.

Eftir Dr. David Whitehouse

Stærsta sólgos frá upphafi skín frá jaðri sólar

Sólin hefur leyst úr læðingi stærsta sólgos sem mælst hefur og kórónar það 10 daga fordæmalausa virkni stjörnunnar.

Sprengingin þeytti milljörðum tonna af ofurheitu gasi út í geim — og hluti þess beinist að plánetu okkar.

Vísindamenn segja að þessi mikla virkni sólarinnar upp á síðkastið hafi leyst úr læðingi hrikalegustu atburði sem sést hafa á yfirborði hennar síðan reglulegt eftirlit hófst.

Sérfræðingar í geimveðri hafa haft nóg að gera við að fylgjast með áhrifum segulstorma á jörðina.

Gífurleg orka

Öflug sólgos fá flokkunina „X“.

Gasskýið leggur af stað

Atburðir af stærðinni X8 og X3 áttu sér stað á sunnudaginn. Á mánudaginn varð svo gos af stærðinni X3 og fleiri smærri í kjölfarið.

Í síðustu viku urðu atburðir af stærðinni X7 og X10, hvor í kjölfar annars.

Gos þriðjudagsins sprengdi kvarðann; rannsakendur segja það hafa verið „langt yfir X20“. Erfitt er að gefa nákvæma lýsingu þar sem sumir eftirlitsgervihnettir blinduðust um stundarsakir vegna umfangs atburðarins.

Þrátt fyrir það segja sérfræðingar að atburðurinn á þriðjudag hljóti að vera sá öflugasti sem nokkurn tíma hefur mælst.

Stærstu gosin eiga upptök sín á sólblettasvæði 486, sem er nú formlega orðið virkasta svæði á sólinni í skráðri sögu sólskoðunar.

Jörðin finnur fyrir höggunum

Stjörnuskoðarar hafa verið hvattir til að vera á varðbergi gagnvart stórfenglegum norðurljósum á myrkum himni.

Þessi dansandi heimskautaljós myndast þegar hraðfleygar agnir (rafeindir og róteindir), sem slöngvast hafa frá sólinni, festast í segulsviði jarðar og lenda í árekstri við gas í efri lögum lofthjúpsins.

Sumir gervihnettir á braut um jörðu gætu einnig verið í skotlínunni. Sá gríðarlegi fjöldi rafeinda sem er að finna í þessum hviðum getur skemmt örflögur um borð. Mögulega þarf að gera hlé á starfsemi þeirra um stundarsakir til að vernda viðkvæman búnað.

Auk þess gæti háorkugeislun sem skellur á lofthjúpnum okkar truflað stuttbylgjuútsendingar og valdið villum í leiðsögukerfum.

Dr. Paal Brekke, aðstoðarverkefnisstjóri vísinda hjá sólareftirlitsgervihnettinum Soho (Solar Heliospheric Observatory), sagði í viðtali við fréttavef BBC: „Ég held að síðasta vika muni fara í sögubækurnar sem eitt áhrifamesta tímabil sólvirkni sem við höfum séð í seinni tíð.“

Hebreabréfið 12:26-29

Raust hans lét jörðina bifast fyrrum. En nú hefur hann lofað: "Enn einu sinni mun ég hræra jörðina og ekki hana eina, heldur og himininn." -27- Orðin: "Enn einu sinni", sýna, að það, sem bifast, er skapað og hverfur, til þess að það standi stöðugt, sem eigi bifast. -28- Þar sem vér því fáum ríki, sem ekki getur bifast, skulum vér þakka það og þjóna Guði, svo sem honum þóknast, með lotningu og ótta. -29- Því að vor Guð er eyðandi eldur.

Guð blessi þig!

Skráðu þig á póstlistann

Við sendum þér svo tilkynningu þegar nýtt efni kemur á síðuna, ásamt öðrum gagnlegum upplýsingum sem tengjast Ljós í myrkri.