Kennslur · Kennslur 6. hluti

SOTK – Að skilja einingu 4. hluti

Persónuleg eining við Drottin kemur á undan sameiginlegri einingu

Eining verkar á mörgum stigum, en á sína dýpstu undirstöðu í því stigi einingar sem við lifum í með Drottni þá stundina. Eining bræðranna er aðeins jafn sterk og eining okkar við Drottin. Sönn eining bræðranna verður að eiga rætur í vilja Guðs; hún byggist ekki á samkomulagi manna, heldur byggist hún á vilja Guðs í hverjum þeim aðstæðum sem upp koma. Hana er ekki að finna í því að fá aðra til að vera sammála okkur, heldur er hún fólgin í því að skilja vilja Guðs og lúta vilja hans.

Þess vegna ritaði heilagur andi þetta fyrir munn Jakobs: Jak 4:1 Af hverju koma stríð og af hverju sennur á meðal yðar? Koma þær ekki af girndum yðar, sem heyja stríð í limum yðar?

Eining næst ekki nema allir aðilar leiti í einlægni að vilja Guðs og gefi sig undir vilja hans.

Sameiginleg eining sem byggir á undirgefni við vilja Guðs er afar kröftug

Sálmarnir 133:1-3

Helgigönguljóð. Eftir Davíð. Sjá, hversu fagurt og yndislegt það er, þegar bræður búa saman, -2- eins og hin ilmgóða olía á höfðinu, er rennur niður í skeggið, skegg Arons, er fellur niður á kyrtilfald hans, -3- eins og dögg af Hermonfjalli, er fellur niður á Síonfjöll. Því að þar hefir Drottinn boðið út blessun, lífi að eilífu.

Ör, sem skotið er af boga, hefur ótrúlegan gegnumslagskraft.

Margir nútímabogar geta verið öflugri en aflmikill riffill. Jafnvel á miðöldum gat ör, sem skotið var af langboga, smogið í gegnum málmbrynjuna sem hermaður klæddist og orðið honum að bana. Ein af ástæðunum fyrir þessu tengist hreyfiorkunni sem geymd er í löngu skafti örvarinnar. Þegar örin lendir á skotmarki, heldur orkan í löngu skaftinu áfram að ýta örinni áfram og veitir henni gífurlegan gegnumslagskraft. Krafturinn kemur af sameinuðu eðli örvarinnar; öll örin stefnir í sömu átt með sama tilgangi.

Vandamál koma upp í kirkjum, trúboðssamtökum og hvers kyns heildum þegar ekki er eining um stefnu og tilgang. Þetta dregur aftur á móti úr krafti Guðs til að framkvæma vilja sinn, og að lokum eyðileggur ruglingurinn markmið og tilgang vilja Guðs í viðkomandi aðstæðum.

Jakobsbréfið 3:16

Því hvar sem ofsi og eigingirni er, þar er óstjórn og hvers kyns böl.

Sálm 133:1-3 segir okkur að stig einingarinnar ákvarði stig smurningarinnar og blessunar Drottins.

Í orði hans er Guði lýst sem föður ljósanna.

Jakobsbréfið 1:17

Sérhver góð gjöf og sérhver fullkomin gáfa er ofan að og kemur niður frá föður ljósanna. Hjá honum er engin umbreyting né skuggar, sem koma og fara.

Ljós, eins og við sjáum það, er blanda af mismunandi litum. Við sjáum þetta þegar við látum hvítt ljós skína í gegnum glerstrending og allir litir regnbogans koma í ljós. Þetta hvíta ljós er ekki sameinað, það samanstendur af mismunandi litum sem hafa ólíkar bylgjulengdir.

Ljósið úr leysigeisla hefur mun meiri kraft vegna þess að bylgjulengdir ljóssins eru sameinaðar. Þessi eining gefur leysigeislanum mikinn kraft.

Taktu eftir að í Jak 1:17 segir að það sem komi frá Guði komi til okkar án umbreytingar. Gríska orðið fyrir þetta er 3883. parallage, en af því er enska orðið „parallel“ (samsíða) dregið. Með öðrum orðum streymir það sem kemur frá Guði í ljósi sem er samsíða eða sameinað. Kraftur eða ljós Guðs getur farið inn í mann, skorið burt krabbamein og leyst það algjörlega upp án þess að eyðileggja aðrar frumur í kringum það.

Þegar hópur er sameinaður í vilja Guðs, leysist úr læðingi gífurlegur kraftur og smurning til að framkvæma þann vilja.

Við verðum að leggja okkar eigin vilja og langanir undir vilja Guðs, og það krefst auðmýktar og hógværðar af okkar hálfu. Við verðum að deyja frá þeirri illsku að vilja fá okkar fram. Það er aðeins einn líkami í Kristi og einn vilji. Þegar við erum eitt með Guði er ekkert ómögulegt.

Efesusbréfið 4:2-6

Verið í hvívetna lítillátir og hógværir. Verið þolinmóðir, langlyndir og umberið hver annan í kærleika. -3- Kappkostið að varðveita einingu andans í bandi friðarins. -4- Einn er líkaminn og einn andinn, eins og þér líka voruð kallaðir til einnar vonar. -5- Einn er Drottinn, ein trú, ein skírn, -6- einn Guð og faðir allra, sem er yfir öllum, með öllum og í öllum.

Þegar hjartað, munnurinn og hugurinn eru sammála er ekkert ómögulegt.

Matteusarguðspjall 18:19

Enn segi ég yður: Hverja þá bæn, sem tveir yðar verða einhuga um á jörðu, mun faðir minn á himnum veita þeim.

Guð blessi þig!

Skráðu þig á póstlistann

Við sendum þér svo tilkynningu þegar nýtt efni kemur á síðuna, ásamt öðrum gagnlegum upplýsingum sem tengjast Ljós í myrkri.