Kennslur · Kennslur 6. hluti
SOTK – Að skilja einingu 1. hluti

Sálmarnir 133:1-3
Helgigönguljóð. Eftir Davíð. Sjá, hversu fagurt og yndislegt það er, þegar bræður búa saman, -2- eins og hin ilmgóða olía á höfðinu, er rennur niður í skeggið, skegg Arons, er fellur niður á kyrtilfald hans, -3- eins og dögg af Hermonfjalli, er fellur niður á Síonfjöll. Því að þar hefir Drottinn boðið út blessun, lífi að eilífu.
Oft þegar við tölum um einingu er það á mjög yfirborðskenndu stigi. Eining er miklu meira en bara það að tveir einstaklingar komi vel saman og séu sammála.
Sönn eining verður að eiga rætur í sambandinu við Drottin Jesú. Oft reynum við að koma á einingu í ákveðnum aðstæðum án þess að skilja að sönn eining á upptök sín í uppruna okkar: Hver erum við, hvaðan komum við og hvers vegna erum við hér?
Jesús sagði í Jóh 10:30: „Ég og faðirinn erum eitt.“ Þessi eining sem Jesús hafði við föðurinn var grundvöllurinn að einingu hans við allt annað.
Líkt getur af sér líkt
Þegar þú skiptir vatni úr einu glasi í tvö glös helst efnið það sama. Hægt er að hella vatninu aftur í upprunalega glasið og það verður fullkomin eining í vatninu. Sameindirnar hafa ekki breyst, vatnið er það sama.
Guð faðir er uppspretta alls, allt er gert úr hans efni. Efni föðurins er hið undirliggjandi efni alls, bæði í hinum náttúrulega og andlega heimi.
Jóhannesarguðspjall 16:27
því sjálfur elskar faðirinn yður, þar eð þér hafið elskað mig og trúað, að ég sé frá Guði út genginn.
Jóhannesarguðspjall 17:8
því ég hef flutt þeim þau orð, sem þú gafst mér. Þeir tóku við þeim og vita með sanni, að ég er frá þér út genginn, og trúa því, að þú hafir sent mig.
Allt er tengt
Biblían segir okkur að jafnvel þótt spörfugl falli dauður til jarðar, þá viti hann af því.
Matteusarguðspjall 10:29
Eru ekki tveir spörvar seldir fyrir smápening? Og ekki fellur einn þeirra til jarðar án vitundar föður yðar.
Hvernig má þetta vera? Heilagur andi fylgist með hverri hreyfingu á himni og jörðu. Það er ljóst að heilagur andi er í öllu, bæði á himni og jörðu. Atómin sjálf í steininum fá orku sína frá heilögum anda. Jesús sagði þetta:
Matteusarguðspjall 10:30
Á yður eru jafnvel höfuðhárin öll talin.
Í hvert skipti sem þú missir hár er það skrásett.
Kólossubréfið 1:17
Hann er fyrri en allt, og allt á tilveru sína í honum.
Guð andinn býr í öllu og sérhver breyting í samfellu þessarar tilveru er skynjuð, skrásett og fundið er fyrir henni. Það er lykilatriði að skilja þetta til að geta skilið einingu. Fyrst verður að koma á einingu milli Guðs og okkar á því stigi sem leyfir lífi hans og krafti að flæða í gegnum okkur. Í mörgum rafeindatækjum eru viðnám sem hindra eða draga úr spennu og straumi rafmagnsins. Við mannfólkið höfum mörg viðnám í okkur þegar kemur að sambandi okkar við Guð: ótta, óöryggi, ranghugmyndir, fordóma, stolt og svo framvegis. Stig einingar okkar við aðra ræðst af stigi einingar okkar við Guð.
Jakobsbréfið 3:16
Því hvar sem ofsi og eigingirni er, þar er óstjórn og hvers kyns böl.
Jakobsbréfið 4:1
Af hverju koma stríð og af hverju sennur meðal yðar? Af hverju öðru en girndum yðar, sem heyja stríð í limum yðar?
Fyrr en þú hefur frið hið innra getur þú ekki lifað í friði við aðra. Þú verður fyrst að vinna baráttuna hið innra.
Í þrjátíu og sjö ára þjónustu minni hef ég séð margar tilraunir kristinna manna til að koma á einingu milli tveggja eða fleiri hópa og ég hef aldrei einu sinni séð neina af þessum tilraunum heppnast. Þetta er vegna þess að eining verður fyrst að komast á milli Drottins Jesú og okkar á því stigi sem getur viðhaldið einingu bræðranna, og trúið mér, það er mjög fátítt. Aðeins Guð getur komið á einingu! Og hann ætlar sér það.
Heilagleiki og eining eru óaðskiljanleg
Eftir því sem Guð heldur áfram að leggja áherslu á þörfina fyrir heilagleika og kirkjan heldur áfram að svara því á viðeigandi hátt, eykst möguleikinn á sannri og raunverulegri einingu til muna. Eining er eitthvað sem Guð veitir, ekki menn, og kjarni sannrar einingar liggur í eðli hans sem við erum sprottin af, en hann er KÆRLEIKUR.
Rómverjabréfið 13:8-10
Skuldið ekki neinum neitt, nema það eitt að elska hver annan, því að sá, sem elskar náunga sinn, hefur uppfyllt lögmálið. -9- Boðorðin: "Þú skalt ekki drýgja hór, þú skalt ekki morð fremja, þú skalt ekki stela, þú skalt ekki girnast," og hvert annað boðorð er innifalið í þessari grein: "Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig." -10- Kærleikurinn gjörir ekki náunganum mein. Þess vegna er kærleikurinn fylling lögmálsins.
Að lokum dálítið umhugsunarefni
Þegar hugur þinn og hjarta eru sammála eða sameinuð, munt þú biðja um hvað sem þú vilt og það mun veitast þér.
Hugur þinn verður að endurnýjast til að hann sé í einingu við þann hluta hjarta þíns sem er andi. Þegar það gerist er allt mögulegt.
Mark 12:33a
Og elska hann af öllu hjarta, af öllum skilningi,
Rómverjabréfið 12:2
Hegðið yður eigi eftir öld þessari, heldur takið háttaskipti með endurnýjung hugarfarsins, svo að þér fáið að reyna, hver sé vilji Guðs, hið góða, fagra og fullkomna.
Guð blessi þig!
