Kennslur · Kennslur 6. hluti

SOTK – Að fara á næsta stig 4. hluti

Að verða hæfur til að fara hærra

Sálmarnir 26:2

Rannsaka mig, Drottinn, og reyn mig, prófa hug minn og hjarta.

Að verða hæfur er meginregla í Guðsríkinu; að standast þau próf sem Guð leggur fyrir okkur er hluti af því hvernig við vöxum og komumst áfram í ríki hans.

Ísraelsþjóðin í eyðimörkinni fór endalaust yfir sama svæðið og gekk hring eftir hring í kringum fjallið. Þau stóðust ekki prófin sem Guð lagði fyrir þau. Heil kynslóð dó í eyðimörkinni. Þetta fólk var lýður Guðs, frelsað fyrir páskafórnina, og kom að Sínaífjalli sem vísar til upplifunar hvítasunnunnar, en þar sátu þau hins vegar föst og dóu.

Fyrra Korintubréf 10:1-6, 11

Ég vil ekki, bræður, að yður skuli vera ókunnugt um það, að feður vorir voru allir undir skýinu og fóru allir yfir um hafið. -2- Allir voru skírðir til Móse í skýinu og hafinu. -3- Allir neyttu hinnar sömu andlegu fæðu -4- og drukku allir hinn sama andlega drykk. Þeir drukku af hinum andlega kletti, sem fylgdi þeim. Kletturinn var Kristur. -5- En samt hafði Guð enga velþóknun á flestum þeirra og þeir féllu í eyðimörkinni. -6- Þessir hlutir hafa gjörst sem fyrirboðar fyrir oss, til þess að vér verðum ekki sólgnir í það, sem illt er, eins og þeir urðu sólgnir í það. -11- Allt þetta kom yfir þá sem fyrirboði, og það er ritað til viðvörunar oss, sem endir aldanna er kominn yfir.

Guð veit hvaða prófraunir þú þarft á að halda

Sérhver skuldbinding okkar við Drottin verður að vera reynd. Hollusta Abrahams við Guð var reynd til þrautar, sem leiddi til þess að hann gat staðist eitt hið erfiðasta próf sem um getur. Guð vildi fá úr því skorið hvort Abraham gæti treyst því orði sem Guð hafði gefið honum. Fyrst Abraham átti að verða faðir trúarinnar, varð Guð að reyna trú hans til hins ýtrasta. Guð sagði við Abraham: „Ég mun gefa þér son.“ Prófraunin sem þetta orð hafði í för með sér fyrir líf hans var gríðarlega erfið.

Fyrsta Mósebók 12:2

Ég mun gjöra þig að mikilli þjóð og blessa þig og gjöra nafn þitt mikið, og blessun skalt þú vera.

Sonur Abrahams var lykillinn að því að fyrirheitin rættust.

Prófraunin sem þurfti til að þetta fyrirheit gæti ræst virtist krefjast lífs Ísaks.

Fyrsta Mósebók 22:1-2

Eftir þessa atburði freistaði Guð Abrahams og mælti til hans: "Abraham!" Hann svaraði: "Hér er ég." -2- Hann sagði: "Tak þú einkason þinn, sem þú elskar, hann Ísak, og far þú til Móríalands og fórna honum þar að brennifórn á einu af fjöllunum, sem ég mun segja þér til."

Þegar öllu var lokið sagði Guð þetta um Abraham

Fyrsta Mósebók 22:11-12

Þá kallaði engill Drottins til hans af himni og mælti: "Abraham! Abraham!" Hann svaraði: "Hér er ég." -12- Hann sagði: "Legg þú ekki hönd á sveininn og gjör þú honum ekkert, því að nú veit ég, að þú óttast Guð, þar sem þú synjaðir mér ekki um einkason þinn."

Abraham varð að sýna sig hæfan með því að standast prófin

Hlýðni við orð Guðs er kjarni málsins

Guð krefst þess að við gefum líf okkar honum algjörlega á vald til að hann geti leitt okkur hærra. Margir kristnir menn komast aldrei á þennan stað og deyja eins og Ísraelsmenn til forna í andlegri eyðimörk, án þess að þekkja Guð í raun og veru.

Uppgjöf lífs okkar til Guðs krefst þess að við gefum vilja okkar honum á vald. Þetta kallar á raunverulegan dauða sjálfsins og á sér oftast nær stað í áföngum. Guð mun leiða okkur í gegnum röð prófrauna þegar kemur að því að leggja niður okkar eigin vilja. Þetta getur verið sársaukafullt ferli, en það er nauðsynlegt. Að segja „verði ekki minn, heldur þinn vilji“ er erfið vegferð. Það eru til mismunandi stig helgunar og hvert nýtt stig færir okkur lengra í Guði. Margir standast nokkur próf, en ekki öll þau próf sem reyna á hlýðnina við Guð. Margir komast ákveðið langt og sitja svo fastir á því stigi.

Síðara Tímóteusarbréf 2:20-21

Á stóru heimili eru ekki einungis gullker og silfurker, heldur og tréker og leirker. Sum eru til viðhafnar, önnur til óþriflegri nota. -21- Sá sem fær sig hreinan gjört af slíku, mun verða ker til viðhafnar, helgað og hagfellt húsbóndanum, hæfilegt til sérhvers góðs verks.

Forgarðurinn í tjaldbúð Móse var stórt svæði og margir gátu komist fyrir innan þeirrar girðingar; þetta er stig trés og moldar. Hið heilaga var mun minna og öll áhöldin þar inni voru úr silfri; færri komust þangað inn. Hið allraheilagasta var hins vegar eingöngu búið gulli og þar átti æðstipresturinn samfélag við Guð augliti til auglitis. Aðeins ker Guðs komast inn á þennan stað.

Stig uppgjafar þinnar gagnvart Guði ræður því á hvaða stigi þú ert einmitt núna.

Fórnirnar sem Ísraelsbörn áttu að færa Guði voru á þremur stigum, þar sem hvert stig var dýrara en það á undan.

Það er mjög áhugaverður ritningarstaður í 3. Mósebók 9

Þriðja Mósebók 9:6

Móse sagði: "Þetta er það, sem Drottinn hefir boðið. Gjörið það, og mun dýrð Drottins birtast yður."

Hvað var þeim skipað að gera? Að færa fórn

Þriðja Mósebók 1:2-3

"Tala þú til Ísraelsmanna og seg við þá: Þegar einhver af yður vill færa Drottni fórn, þá skuluð þér færa fórn yðar af fénaðinum, af nautum og sauðum. -3- Sé fórn hans brennifórn af nautum, skal það, er hann fórnar, vera karlkyns og gallalaust. Skal hann leiða það að dyrum samfundatjaldsins, svo að hann verði Drottni velþóknanlegur.

Það voru þrjú stig fórna

1) Turtildúfa v. 14

2) Sauður v. 10

3) Ungnaut v. 5

Hver fórn á fætur annarri var dýrari en sú á undan. Sú rýrasta táknaði forgarðinn, sú næsta hið heilaga, og síðasta og dýrasta fórnin, ungnautið, táknaði hið allraheilagasta.

Síðara Tímóteusarbréf 2:20

Á stóru heimili eru ekki einungis gullker og silfurker, heldur og tréker og leirker. Sum eru til viðhafnar, önnur til óþriflegri nota.

Að bíða Drottins kemur þessu ferli af stað

Þegar við tökum okkur tíma til að leita Drottins og bíða hans, mun Guð að lokum nálgast okkur og tala við okkur. Hlýðni við rödd hans hrindir af stað þessu þjálfunarferli, sem mun halda áfram þar til Drottinn fær leitt okkur inn í hið allraheilagasta. Þetta gerist ekki á einni nóttu en það mun gerast, og vöxtur þinn felur í sér að þú deyrð sjálfum þér aðeins meira í hvert sinn.

Guð þarf að fá að vita, hann þarf að reyna þig að þessu leyti: Er Guð í fyrsta sæti í lífi þínu? Hvers vilji ræður ferðinni, þinn eða Guðs? Þetta er ekki auðvelt ferli og oft sitjum við föst á ákveðnu stigi vegna þess að við erum ekki tilbúin að gjalda það verð sem ríkari uppgjöf krefst. Hinn þekkti predikari Andrew Murray var eitt sinn spurður: „Hvað er kristnum manni mikilvægast?“ Hann svaraði: „Algjör uppgjöf.“

Sýrlandskonungur skildi algjöra uppgjöf

Fyrri Konungabók 20:1-4

Benhadad konungur á Sýrlandi dró saman allan her sinn. Voru þrjátíu og tveir konungar með honum, með hestum og vögnum, og hann fór, settist um Samaríu og gjörði áhlaup á hana. -2- Og hann sendi menn til Akabs Ísraelskonungs inn í borgina -3- og lét segja honum: "Svo segir Benhadad: Silfur þitt og gull er mitt, svo og hinar fegurstu konur þínar og synir." -4- Ísraelskonungur svaraði og sagði: "Eins og þú vilt vera láta, minn herra konungur. Ég er þinn og allt, sem ég á."

Vinir, leiðin að því að þekkja Drottin af alvöru hefst með algjörri uppgjöf og hún felur í sér að þú gefir Guði af tíma þínum. Að bíða Drottins er ekki valatriði ef þú vilt komast á næsta stig, það er algjör nauðsyn.

Jeremía 29:13

Og þér munuð leita mín og finna mig. Þegar þér leitið mín af öllu hjarta,

Guð blessi þig!

Skráðu þig á póstlistann

Við sendum þér svo tilkynningu þegar nýtt efni kemur á síðuna, ásamt öðrum gagnlegum upplýsingum sem tengjast Ljós í myrkri.