Kennslur · Kennslur 6. hluti

SOTK – Smurt sæði

Markúsarguðspjall 14:3-4, 8

Hann var í Betaníu, í húsi Símonar líkþráa, og sat að borði. Þá kom þar kona og hafði alabastursbuðk með ómenguðum, dýrum nardussmyrslum. Hún braut buðkinn og hellti yfir höfuð honum. -4- En þar voru nokkrir, er gramdist þetta, og þeir sögðu sín á milli: "Til hvers er þessi sóun á smyrslum? -8- Hún gjörði það, sem í hennar valdi stóð. Hún hefur fyrirfram smurt líkama minn til greftrunar.

Jesús var smurður til greftrunar með nardus

Nardus er einn af ávöxtum andans sem taldir eru upp í 4. kafla Ljóðaljóðanna og er tákn um frið.

Ljóðaljóðin 4:12-14

Lokaður garður er systir mín, brúður, lokuð lind, innsigluð uppspretta. -13- Frjóangar þínir eru lystirunnur af granateplatrjám með dýrum ávöxtum, kypurblóm og nardusgrös, -14- nardus og krókus, kalamus og kanel, ásamt alls konar reykelsisrunnum, myrra og alóe, ásamt alls konar ágætis ilmföngum.

Nardus er þriðji ávöxtur andans sem talinn er upp hér.

Þetta samsvarar þriðja ávexti andans í 4. kafla Efesusbréfsins, sem er friður.

Galatabréfið 5:22-23

En ávöxtur andans er: Kærleiki, gleði, friður, langlyndi, gæska, góðvild, trúmennska, -23- hógværð og bindindi. Gegn slíku er lögmálið ekki.

Besta nardussmyrslið á dögum Jesú var flutt inn frá Indlandi í innsigluðum alabastursbuðki. Þetta var mjög dýrmætt smyrsli sem var aðeins notað við sérstök tækifæri. Smyrslið hafði sérstakan ilm sem fyllti allt húsið.

Lærisveinunum þótti notkun þessa smyrslis, eins og lýst er í 14. kafla Markúsarguðspjalls, vera mikil sóun. Þeir gerðu sér ekki grein fyrir því að þessi smurning Jesú með nardus var táknræn smurning sem tengdist dauða hans.

Jesús vissi hvað þessi atburður merkti og hafði fullkominn frið yfir því

Jesús átti að vera sæði allra sæða sem myndi leiða til endurlausnar óteljandi milljóna manna og hann hafði frið yfir því.

Jóhannesarguðspjall 12:24

Sannlega, sannlega segi ég yður: Ef hveitikornið fellur ekki í jörðina og deyr, verður það áfram eitt. En ef það deyr, ber það mikinn ávöxt.

11. september markaði upphaf nýs tímabils á jörðinni

Margir kristnir menn létu lífið þegar ráðist var á tvíburaturnana; nokkuð margir þeirra sem létust voru börn. Síðan þá hefur lögleysi færst mjög í vöxt um alla jörð að því marki sem minnir á „daga Nóa“.

Fyrsta Mósebók 6:3, 5, 11-12

Þá sagði Drottinn: "Andi minn skal ekki ævinlega búa í manninum, með því að hann einnig er hold. Veri dagar hans nú hundrað og tuttugu ár." -5- Er Drottinn sá, að illska mannsins var mikil á jörðinni og að allar hugrenningar hjarta hans voru ekki annað en illska alla daga, -11- Jörðin var spillt í augsýn Guðs, og jörðin fylltist glæpaverkum. -12- Og Guð leit á jörðina, og sjá, hún var spillt orðin, því að allt hold hafði spillt vegum sínum á jörðinni.

Lúkasarguðspjall 17:26

Eins og var á dögum Nóa, svo mun og verða á dögum Mannssonarins:

Í dag sjáum við dauða alls staðar. Við ættum hins vegar að vera meðvituð um að Jesús talaði um þessa tíma. Hann varaði okkur við að þetta myndi gerast og fara sífellt versnandi því nær sem við komum endalokunum.

Matteusarguðspjall 24:7-9, 13-14

Þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki, þá verður hungur og landskjálftar á ýmsum stöðum. -8- Allt þetta er upphaf fæðingarhríðanna. -9- Þá munu menn framselja yður til pyndinga og taka af lífi, og allar þjóðir munu hata yður vegna nafns míns. -13- En sá sem staðfastur er allt til enda, mun hólpinn verða. -14- Og þetta fagnaðarerindi um ríkið verður prédikað um alla heimsbyggðina öllum þjóðum til vitnisburðar. Og þá mun endirinn koma.

Mikill fjöldi þeirra hermanna sem hafa fallið í Írak var kristinn, og þú spyrð kannski hvers vegna þessi sóun. Við þurfum að horfa dýpra, handan stjórnmálanna, og sjá hlutina frá sjónarhóli Guðs. Frá sjónarhóli Guðs er ekki hægt að líta á þau átök sem geisa í Miðausturlöndum út frá pólitískum hvötum; þetta er andleg barátta á milli Guðsríkis og ríkis Satans. Þetta er barátta á milli anda Babýlonar og Guðsríkisins. Þú sérð kannski aðeins dauða, en Guð sér líf. Öfgafullar hreyfingar íslamista hafa myrt mýmargt saklaust fólk, en margir þeirra sem voru drepnir voru smurt sæði. Sögur berast frá ódæðinu í Tvíburaturnunum þar sem margir af þeim sem lifðu af segja frá því að þeir sem voru að deyja hafi fundið fyrir miklum, yfirnáttúrulegum friði; þeir hafi verið smurðir nardusi. Svipaðar sögur heyrast af mörgum þeirra hermanna sem hafa fallið í Írak.

Það sem íslömsku hreyfingarnar gera sér ekki grein fyrir er að þær valda því að sæði er sáð sem mun skila sér í ótrúlegri uppskeru meðal múslima. Jafnvel á meðan þú lest þetta eru mjög margir múslimar að snúa sér til Drottins.

Jesaja 30:25

Á hverju háu fjalli og á hverri gnæfandi hæð munu vatnslækir fram fljóta á hinum mikla mannfallsdegi, þegar turnarnir hrynja.

Hvers vegna þessi sóun

Sálmarnir 116:15

Dýr er í augum Drottins dauði dýrkenda hans.

Margir litu á dauða Jesú sem sóun á lífi góðs manns. Guð sá það sem sína höfuðáætlun. Páll postuli var ekki gamall maður þegar hann dó. Stefán var ungur maður þegar hann dó, en hann var sæði fyrir uppskeru frumkirkjunnar, ásamt mörgum öðrum sem létust.

Það getur engin uppskera orðið nema sæði sé fyrst sáð. Það er ekkert upprisulíf án dauða.

Jesús vill að við séum stöðugt smurð nardusi og í friði, og að við óttumst ekki það sem er að gerast í heiminum í kringum okkur. Guð getur ekki notað okkur á þeim dögum sem fram undan eru ef við óttumst dauðann. Páll postuli sagði: „Ég dey daglega.“ Hann lifði lífi sínu í eftirsókn eftir Guði og Guðsríkinu.

Rómverjabréfið 14:8

Ef vér lifum, lifum vér Drottni, og ef vér deyjum, deyjum vér Drottni. Hvort sem vér þess vegna lifum eða deyjum, þá erum vér Drottins.

Guðsríkið er nú reiðubúið til að taka á móti mestu uppskeru sem kirkjan hefur nokkru sinni séð. Hún er miklu nær en flestir kristnir menn halda. Í miðjum dauða og eyðileggingu munum við sjá uppskeru af slíkri stærðargráðu að við hefðum ekki trúað því að hún væri möguleg. Spámaðurinn Habakkuk sá þennan dag og sagði:

Habakkuk 1:3-4

Hví lætur þú mig sjá rangindi, hví horfir þú upp á rangsleitni? Eyðing og ofríki standa fyrir augum mér. Af því koma þrætur, og deilur rísa upp. -4- Fyrir því verður lögmálið magnlaust og fyrir því kemur rétturinn aldrei fram. Hinir óguðlegu umkringja hina réttlátu, fyrir því kemur rétturinn fram rangsnúinn.

Habakkuk sá hins vegar handan dauðans og eyðileggingarinnar og sagði þetta.

Habakkuk 1:5 Lítið út meðal þjóðanna og horfið á, undrist og skelfist, því að það verk vinn ég á yðar dögum, sem þér munduð ekki trúa, þótt frá væri sagt.

Guð blessi þig!

Skráðu þig á póstlistann

Við sendum þér svo tilkynningu þegar nýtt efni kemur á síðuna, ásamt öðrum gagnlegum upplýsingum sem tengjast Ljós í myrkri.