Kennslur · Kennslur 6. hluti

SOTK – Að skilja einingu 2. hluti

Jóhannesarguðspjall 17:11

Ég er ekki lengur í heiminum. Þeir eru í heiminum, en ég kem til þín. Heilagi faðir, varðveit þá í þínu nafni, því nafni, sem þú hefur gefið mér, svo að þeir verði eitt eins og við.

Jesús bað þess að við yrðum eitt (með Drottni) eins og hann var eitt með föðurnum.

Jesús var eitt með föðurnum og þrá hans er að við verðum eitt með föðurnum rétt eins og hann var.

Gríska orðið fyrir EITT í Jóh 17:11 þýðir einfaldlega eitt, tölustafinn 1. Það er ekki samsetning tveggja hluta. Þetta er okkur mikilvægt að skilja og er algjör grundvöllur að skilningi okkar á einingu. Ef þú blandar rauðum og bláum lit saman færðu út annan lit. Þeir tveir hafa ekki sameinast heldur urðu báðir að einhverju öðru. Sjáðu til, Guð ætlar ekki að verða eitt með okkur, við verðum að verða eitt með honum.

Guð sýndi andstyggð sína á blöndun á ýmsan hátt.

Fimmta Mósebók 22:9-11

Þú skalt eigi sá víngarð þinn tvenns konar sæði, svo að allt falli ekki undir helgidóminn, sæðið, sem þú sáir, og eftirtekjan af víngarðinum. -10- Þú skalt ekki plægja með uxa og asna saman. -11- Þú skalt ekki fara í föt, sem ofin eru af tvenns konar efni, af ull og hör saman.

Þriðja Mósebók 19:19

Þér skuluð varðveita setningar mínar. Þú skalt eigi láta tvær tegundir fénaðar þíns eiga samlag, þú skalt eigi sá akur þinn tvenns konar sæði og eigi skalt þú bera klæði, sem ofin eru af tvenns konar efni.

Þér er fyrirhugað að verða eins og Jesús

Rómverjabréfið 8:29

Því að þá, sem hann þekkti fyrirfram, hefur hann og fyrirhugað til þess að líkjast mynd sonar síns, svo að hann sé frumburður meðal margra bræðra.

Við eigum að verða eins og hann: Ég heyri mörg ykkar segja: „Æ, jæja, þegar ég kem til himna mun ég breytast.“ Já, þú munt gera það, en þá munt þú hafa farið á mis við hlutskipti þitt og tilgang, sem er að verða eins og hann á meðan við erum enn hér á jörðinni í holdinu.

Jesús kemur til að sækja fullkomna brúði

Páll postuli bað þannig: Gal 4:19 Börn mín, sem ég nú að nýju el með harmkvælum, þangað til Kristur er myndaður í yður. (Páll var að tala um hér og nú, en ekki í eilífðinni).

Jesús sagði:

Matteusarguðspjall 5:48

Verið þér því fullkomnir, eins og faðir yðar himneskur er fullkominn.

Jóhannesarguðspjall 17:21

að allir séu þeir eitt, eins og þú, faðir, ert í mér og ég í þér, svo séu þeir einnig í okkur, til þess að heimurinn trúi, að þú hefur sent mig.

Jóhannesarguðspjall 17:23

ég í þeim og þú í mér, svo að þeir verði fullkomlega eitt, til þess að heimurinn viti, að þú hefur sent mig og að þú hefur elskað þá, eins og þú hefur elskað mig.

Þú segir eflaust: „Jæja, ég mun aldrei ná slíkri fullkomnun, þetta hlýtur að þýða eitthvað annað!“ Er það ekki skondið að þegar við sjáum eitthvað í orði Guðs sem virðist ómögulegt, drögum við þá ályktun að það hljóti að þýða eitthvað annað.

Þú getur ekki breytt þér sjálfur

Sama hversu mikið við reynum, þá getum við ekki orðið eins og Jesús. Hins vegar getur þú þráð heitt að verða eins og hann og tekið ákvarðanir sem koma þér í þá stöðu að þér verði breytt.

Jesús sagði þetta

Matteusarguðspjall 11:28-30

Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld. -29- Takið á yður mitt ok og lærið af mér, því að ég er hógvær og af hjarta lítillátur, og þá munuð þér finna hvíld sálum yðar. -30- Því að mitt ok er ljúft og byrði mín létt."

Ertu orðinn þreyttur á að reyna, og finnst þetta einfaldlega of erfitt? Jesús sagði: KOMIÐ TIL MÍN og ég mun veita yður hvíld.

Hættu að reyna, hættu að framkvæma og gefðu þig einfaldlega Drottni á vald

Jesús sagði okkur að taka á okkur ok sitt. Hvað er þetta ok? Ok er eitthvað sem bindur þig við eitthvað annað. Þegar þú leggur ok á tvö naut eru þau tengd saman og komast ekki hvort frá öðru, þau eru undir sama oki. Jesús vill að þú komir til sín, haldir þig nálægt sér og leyfir sér að breyta þér. Aðeins þá getur þú fundið hvíld sálu þinni.

Þetta er val

Þú verður að taka þá ákvörðun að koma til Drottins og halda þig nálægt honum. Hvernig ferðu að því?

Jesús sagði í 29. versi: Lærið af mér. Hvað eigum við að læra af honum? Því að ég er hógvær og af hjarta lítillátur. Sjáðu til, aðeins þeir sem vita, já vita fyrir víst, að þeir geta þetta ekki án hans, munu í raun ná árangri. Hógværð felur í sér enga mótspyrnu, lítillæti eða auðmýkt felur í sér að þú getur ekki gert þetta upp á eigin spýtur.

Leyndi lykillinn

Þér verður ekki breytt af eigin kröftum, þér er breytt við að dvelja í návist Drottins. Breytingin hlýst ekki af gjörðum, hún hlýst af því að vera, að vera í hans návist. Bókabúðir eru fullar af sjálfsbætingarefni sem kennir manni hvernig maður getur breytt sjálfum sér. Þessi nýaldarhúmanismi er alls ekkert nýr af nálinni, líkt og Kain komst að og varð honum að falli.

Húmanismi hefur sterk tök innan kirkjunnar og hann læðist inn í margar af helstu kenningum Biblíunnar eins og um trú, helgun, heilagleika o.s.frv. Það þarf að innprenta okkur að aðeins Jesús getur breytt manni, og til þess þarf maður einfaldlega að vera nálægt honum. Þegar hann síðan opinberar okkur vilja sinn, þá hlýðum við og höldum áfram að vera nálægt honum.

Farísearnir skildu þetta alls ekki. Jesús sagði þetta við þá:

Jóhannesarguðspjall 5:39-40

Þér rannsakið ritningarnar, því í þeim hyggist þér eiga eilíft líf. Og það eru þær, sem vitna um mig, -40- en þér viljið ekki koma til mín og öðlast lífið.

Farísearnir rannsökuðu ritningarnar og voru sérfræðingar í lögmálinu, en voru andlega dauðir. Jesús sagði við þá að það væri ekkert raunverulegt líf til, nema með því að koma til sín.

Ef þú ætlar að verða eins og hann verður þú að verja gæðastundum með honum

Það er ekki nóg að eiga snögga bænastund á morgnana og kannski aðra snögga á kvöldin. Þú verður að verja tíma með honum.

Jesús sagði: KOMIÐ TIL MÍN, TAKIÐ Á YÐUR MITT OK. Okið er að vera með honum og hlýða honum, hitt er í höndum Drottins. Það tekur tíma að vera með Jesú, gæðatíma, og ef þú ert ekki tilbúinn að verja gæðatíma með honum muntu ekki breytast.

Jesús gerði þetta auðvelt: en ætlarðu að gera það? Það tekur tíma að vera einn með Drottni, bíða þess að návist hans verði skynjanleg og dvelja síðan í andrúmslofti návistar hans. Það er þegar þú ert í skynjanlegri návist Drottins sem hreinsun, endurnýjun, lækning og breyting byrjar að eiga sér stað. Þú getur ekki verið með Jesú og verið samtímis óbreyttur.

Síðara Korintubréf 3:18

En allir vér, sem með óhjúpuðu andliti endurspeglum dýrð Drottins, ummyndumst til hinnar sömu myndar, frá dýrð til dýrðar. Þetta gjörir andi Drottins.

Þessi sameining við Drottin færir okkur æ meir inn í einingu með honum. Eftir því sem við byrjum að breytast vex einingin sem við eigum með honum, þar til hjarta okkar og hugur verða eitt, sameinuð í Drottni. Þegar við verðum fyrir ljósinu sem stafar frá Drottni byrja djúpstæðar breytingar að eiga sér stað, sem eru nánast ómerkjanlegar í fyrstu. En það er eitthvað að gerast djúpt innra með þér þegar andi þinn tekur við meira ljósi og byrjar að beina því ljósi og krafti í gegnum þig. Þú byrjar að breytast innan frá og út.

Síðara Korintubréf 4:6

Því að Guð, sem sagði: "Ljós skal skína fram úr myrkri!" - hann lét það skína í hjörtu vor, til þess að birtu legði af þekkingunni á dýrð Guðs, eins og hún skín frá ásjónu Jesú Krists.

Guð blessi þig!

Skráðu þig á póstlistann

Við sendum þér svo tilkynningu þegar nýtt efni kemur á síðuna, ásamt öðrum gagnlegum upplýsingum sem tengjast Ljós í myrkri.