Kennslur · Kennslur 6. hluti

SOTK – Ef þú trúir geturðu séð

Lestu orðin í kassanum hér að neðan á venjulegum lestarhraða og teldu hversu oft stafurinn F kemur fyrir. Ekki stoppa til að telja meðan þú lest, lestu bara á þínum venjulega hraða.

FULLGERÐ FRÆÐIGÖGN ERU

ÁRANGUR AF MARGRA

ÁRA VÍSINDALEGRI RANN-

SÓKN AUK REYNSLU AF

ÞVÍ AÐ STARFA AF

MIKILLI FÆRNI

Flestir sjá aðeins þrjú eða fjögur. Ástæðan fyrir því að þú sérð ekki öll sex er sú að þegar þú lest orðið AF berðu það fram í huganum sem AV, og á meðan þú hefur AV í huganum er ómögulegt að sjá F-ið.

Hugurinn getur ekki rúmað tvær andstæðar hugsanir á sama tíma; hugurinn getur ekki hugsað tvær ólíkar hugsanir samtímis.

Sálmarnir 139:14

Ég lofa þig fyrir það, að ég er undursamlega skapaður, undursamleg eru verk þín, það veit ég næsta vel.

Við höfum skoðað mátt hugans í öðrum fræðslum en við skulum líta á þetta efni aftur frá nýju sjónarhorni.

Þegar hjartað og hugurinn sameinast opnast brú sem gerir okkur kleift að ganga yfir í vídd Guðsríkisins.

Hugurinn er brúin á milli heimanna tveggja

Þegar hugur þinn er í samræmi við vilja Guðs og tilgang hans með líf þitt verður ímyndunarafl þitt að verkfæri, að krafti og brú, sem þú getur notað til að stíga yfir í hinn ósýnilega heim andans. Vídd Guðs, andleg vídd Guðsríkisins, er „Í ANDA“; þangað er ekki hægt að ganga inn í holdinu, hinum efnislega heimi.

Fyrra Korintubréf 15:50

En það segi ég, bræður, að hold og blóð getur eigi erft Guðs ríki, eigi erfir heldur hið forgengilega óforgengileikann.

Guðsríkið heyrir ekki þessum efnislega heimi til, það er andlegt ríki. Við getum ekki gengið yfir í þá vídd í okkar efnislega líkama. Hins vegar þurfum við að átta okkur á því að við mannfólkið erum ekki bara efnisleg, við höfum einnig andlegan líkama. Það er með okkar andlegu veru sem við tengjumst vídd Guðsríkisins.

Orðskviðirnir 20:27

Andi mannsins er lampi frá Drottni, sem rannsakar hvern afkima hjartans.

Fyrra Korintubréf 2:11

Hver meðal manna veit hvað mannsins er, nema andi mannsins, sem í honum er? Þannig hefur heldur enginn komist að raun um, hvað Guðs er, nema Guðs andi.

Sakaría 12:1

Spádómur. Orð Drottins um Ísrael, guðmæli Drottins, sem útþandi himininn, grundvallaði jörðina og myndaði andann í brjósti mannsins:

Fyrra Korintubréf 2:14

Maðurinn án anda veitir ekki viðtöku því, sem Guðs anda er, því að honum er það heimska og hann getur ekki skilið það, af því að það dæmist andlega.

Ef við ætlum að ganga með Guði í andanum er það aðeins hægt með okkar andlega manni. Guð er andi, og þeir sem tilbiðja hann eiga að gera það í anda.

Jóhannesarguðspjall 4:24

Guð er andi, og þeir, sem tilbiðja hann, eiga að tilbiðja í anda og sannleika."

Hvað þýðir þetta?

Jú, það verður að gerast með hjartanu en ekki höfðinu. Heimur andans er heimur sýna, drauma og innblásins orðaflaums; hann er sjálfsprottinn en ekki framkallaður af hinum efnislega manni. Þegar tilbeiðsla þín nær því stigi að verða innblásin og sjálfsprottin ertu að tilbiðja í anda, og þetta getur tengst sýnum.

Guð segist vilja að við tilbiðjum sig á þennan hátt OG einnig í SANNLEIKA

Orðið sannleikur í þessu versi er gríska orðið 225. aletheia, al-ay'-thi-a; frá G227; úr gríska númerakerfi Strongs.

Merking þessa orðs er mjög áhugaverð. Ég vitna í ensk-gríska orðabók Bullingers...

„Sannleikur í merkingunni opinberaður raunveruleiki sem liggur til grundvallar og er í samræmi við birtanleikann; sjálfur kjarni málsins og því raunveruleikinn sem tilheyrir birtingarmynd eða opinberun sannleikans.“

Með öðrum orðum: Þegar þú tilbiður frá andanum eða hjartanu opnast raunveruleiki þess sem þú ert að tilbiðja. Þú gengur inn í vídd Guðsríkisins, hinn ósýnilega heim andans, heim andlegrar sjónar, hljóðs og ilms; allan raunveruleikann og kjarnann, sannleikann sem birtist í heimi andans með því að sjá, heyra og skilja.

Þegar hugur þinn og andi, eða hjarta, eru sammála í sannleika opnast dyr inn í vídd Guðs.

Opinberunarbókin 1:10

Ég var hrifinn í anda á Drottins degi og heyrði að baki mér raust mikla, sem lúður gylli,

Opinberunarbókin 4:1-2

Eftir þetta sá ég sýn: Opnar dyr á himninum og raustin hin fyrri, er ég heyrði sem lúður gylli, talaði við mig og sagði: "Stíg upp hingað, og ég mun sýna þér það, sem verða á eftir þetta." -2- Jafnskjótt var ég hrifinn í anda. Og sjá: Hásæti stóð á himni og einhver sat í hásætinu.

Líkami Jóhannesar varð eftir á jörðinni á meðan andi hans fór til himna

Jóhannes postuli átti ótrúlegan fund við Drottin sem hófst þegar hann var „í anda“.

Fyrsta Mósebók 46:2

Og Guð talaði við Ísrael í sýn um nóttina og sagði: "Jakob, Jakob!" Og hann svaraði: "Hér er ég."

Jobsbók 4:12-13

En til mín laumaðist orð, og eyra mitt nam óminn af því - -13- í heilabrotunum, sem nætursýnirnar valda, þá er þungur svefnhöfgi er fallinn yfir mennina.

Þessir menn sáu hluti sem var lýst sem sýnum eða draumum, en í raun og veru var andi þeirra raunverulega þar. Jóhannes fór í alvörunni til himna. Í Biblíunni voru þetta ekki sýnir eins og við skiljum orðið sýnir, andi þeirra var raunverulega á staðnum. Þessari reynslu er oft lýst sem sýnum eða draumum, en í raun var þetta ekki einhver dulspekileg upplifun heldur var andi þessa fólks þar í raun og veru.

Þetta var í sannleika, gríska aletheia, og því „raunveruleikinn sem tilheyrir birtingarmynd eða opinberun sannleikans“.

En snúum okkur aftur að spurningunni: Hversu mörg F voru í textanum?

Kirkjunni hefur svo lengi verið kennt að svona upplifanir – að vera í andanum, sjá inn í himininn og sjá Jesú – séu aðeins fyrir fáa útvalda við mjög sérstök tækifæri.

Flest okkar trúðu þessu, því þannig hefur okkur verið kennt um þessa hluti og þess vegna sjáum við þá á þann hátt. Þetta setur hulu og hindrun í huga okkar sem aftrar okkur frá því að ganga inn í andlega vídd Guðsríkisins.

Jesús sagði: „Ef þú trúir, munt þú sjá dýrð Guðs.“

Getur venjulegur kristinn maður gengið inn í svona samband við Drottin? Getur þú tilbeðið í anda og raunveruleika? Hið ótvíræða svar við því er JÁ, ef þú trúir að þú getir það.

Ef þú trúir, getur þú séð.

Guð blessi þig!

Skráðu þig á póstlistann

Við sendum þér svo tilkynningu þegar nýtt efni kemur á síðuna, ásamt öðrum gagnlegum upplýsingum sem tengjast Ljós í myrkri.