Kennslur · Kennslur 6. hluti
SOTK – Náðin, hvati að komandi vakningu

Sakaría 4:6-7
Þá tók hann til máls og sagði við mig: "Þetta eru orð Drottins til Serúbabels: Ekki með valdi né krafti, heldur fyrir anda minn! - segir Drottinn allsherjar. -7- Hver ert þú, stóra fjall? Fyrir Serúbabel skalt þú verða að sléttu. Og hann mun færa út hornsteininn, og þá munu kveða við fagnaðaróp: Dýrlegur, dýrlegur er hann!"
Hvati er efnafræðilegt efni sem eykur hraða efnahvarfs án þess að taka sjálft nokkrum breytingum.
Þegar við yfirfærum þessa merkingu á náð Guðs verður náðin að hvatanum sem kallar fram raunverulegar breytingar, hraðari framgang og velþóknun, okkur til góðs í lífinu.
Engillinn sagði Serúbabel að hann gæti ekki lokið ætlunarverki sínu nema smurning og andi Drottins kæmi yfir hann, og það myndi honum aðeins hlotnast af náð Guðs. Náðinni mætti lýsa sem óverðskuldaðri hylli Guðs, og án hennar getum við engu áorkað sem hefur varanlegt og eilíft gildi. Þetta er alvöruþrunginn sannleikur og endurspeglast í orðum Páls postula í 4. kafla Filippíbréfsins.
Filippíbréfið 3:4-9
jafnvel þótt ég hafi einnig þá ytri yfirburði, sem ég gæti treyst. Ef einhver annar þykist geta treyst ytri yfirburðum, þá get ég það fremur. -5- Ég var umskorinn á áttunda degi, af kyni Ísraels, ættkvísl Benjamíns, Hebrei af Hebreum, farísei í afstöðunni til lögmálsins, -6- svo ákafur, að ég ofsótti kirkjuna. Ef litið er á réttlætið, sem fæst með lögmálinu, var ég vammlaus. -7- En það, sem var mér ávinningur, met ég nú vera tjón sakir Krists. -8- Já, meira að segja met ég allt vera tjón hjá þeim yfirburðum að þekkja Krist Jesú, Drottin minn. Sakir hans hef ég misst allt og met það sem sorp, til þess að ég geti áunnið Krist -9- og reynst vera í honum. Nú á ég ekki eigið réttlæti, það er fæst af lögmáli, heldur það er fæst fyrir trú á Krist, réttlætið frá Guði með trúnni. -
Páll postuli hlaut menntun í einhverjum bestu skólum síns tíma en komst að raun um að þekkingin á Jesú Kristi fengist aðeins af náð Guðs fyrir guðlega opinberun.
Jesús var aldrei fjötraður af beiskju, aldrei kvíðinn og aldrei öfundsjúkur. Hann beitti fólk aldrei brögðum til að stjórna því, hann var aldrei óöruggur og leið aldrei af sjálfshöfnun. Nánd hans við föðurinn veitti honum öryggi. Hann var aldrei upp á náð og ónáð aðstæðna kominn.
HANN VAR FRJÁLS
Þvílíkt líf; hver myndi ekki þrá slíkt líf?
Jesús gaf sig algerlega á vald vilja föðurins og hvíldi í þeim áformum og þeim tilgangi sem faðirinn hafði með hann. Allt sem hann þurfti að gera var að hlusta, hlýða og treysta því að náð föðurins sæi honum fyrir öllu sem hann þurfti á að halda.
Flestar vakningar hefjast þegar eigin geta kirkjunnar er á þrotum
Eitt af stærstu undrum komandi vakningar verða UNGLINGAR og jafnvel stálpuð börn.
Þau verða á meðal öflugustu trúboða sem kirkjan hefur nokkurn tímann séð
Þau munu lækna sjúka, reka út illa anda og reisa upp dauða.
Rétt eins og Satan reyndi að útrýma börnunum á dögum Móse með því að myrða þau, og síðan á dögum Heródesar, hefur Satan enn á ný reynt að þurrka út heila kynslóð. Á okkar dögum hefur Satan reynt að útrýma unga fólkinu með fóstureyðingum, eiturlyfjum, kynferðislegri misnotkun og ofbeldi. Þessi kynslóð barna, í þúsundatali, er dregin í gegnum dreggjar helvítis, synd, áföll og örvæntingu. En jafn djúpt og Satan hefur fest rætur í þeim mun Guð uppræta hið illa úr þeim og fylla þau af réttlæti Guðs. Þetta verður mikilfenglegt náðarverk þar sem Guð teygir sig niður til að bjarga glataðri kynslóð.
Jesebel mun missa börnin sín
Jesaja 47:8-9
En heyr nú þetta, þú hin sællífa, er situr andvaralaus og segir í hjarta þínu: "Ég og engin önnur. Í ekkjudómi skal ég aldrei sitja og eigi reyna, hvað það er að vera barnalaus." -9- En hvort tveggja þetta skal þér að hendi bera skyndilega, á einum degi. Þú skalt bæði verða barnalaus og ekkja. Í fullum mæli mun það yfir þig koma, þrátt fyrir þína margvíslegu töfra og þínar miklu særingar.
Dauði og helja, þið munuð missa börnin ykkar
Jesaja 42:22-23
Og þó er þetta rændur og ruplaður lýður, þeir eru allir fjötraðir í gryfjum og byrgðir í myrkvastofum. Þeir eru orðnir að herfangi, og enginn frelsar þá, orðnir að ránsfeng, og enginn segir: "Skilið þeim aftur!" -23- Hver af yður vill hlýða á þetta, gefa því gaum og veita því athygli framvegis?
Aðeins náð Guðs getur frelsað þessa kynslóð: Ég get ekki beðið eftir að sjá þessa kynslóð koma til Drottins, það verður eitt mesta undur sem kirkjan hefur nokkru sinni litið augum.
Nýverið fylgdist heimsbyggðin agndofa með atburðunum og sjónarspilinu í kringum andlát Önnu Nicole Smith. Flestir kristnir menn litu á hana sem illa, siðlausa og siðspillta manneskju. Eiginkona mín fann til djúprar byrði fyrir þessari konu og bað mikið fyrir henni. Nýlega las ég eftirfarandi djúpstæð spádómsorð eftir Kim Clement varðandi þessa konu.
Ég tók við Önnu Nicole Smith
„Meira að segja dauða Önnu Nicole fylgir tilgangur. Það er eitthvað sem verður að segjast af munni spámannsins varðandi andlát þessarar konu.“ Því að Guð segir: „Öll þjóðin syrgir, en ég syrgði löngu áður en hún dó, því hún hrópaði til mín þremur dögum áður en hún lést og kallaði: ,Guð, hjálpaðu mér – ég er glötuð; ég er föst.‘ Áttar sig nokkur á því að þremur dögum fyrir dauða hennar stóð ég við hlið hennar og snerti konuna sem kölluð er Anna Nicole Smith?“
Guð segir við þig, Ameríka: „Þetta mun einnig verða mörgum viðvörun um að ég er í þann mund að dæma siðspillinguna í þessari þjóð.“ Guð segir: „Ég mun sýna mátt minn og reisa upp fólk eins og hana til að þjóna þeim sem á götunum eru. Upprisa mun eiga sér stað vegna þess að óvinurinn tók hana,“ en Guð segir: „Ég tók hana í arma mér.“
Til að horfa á myndskeiðið þar sem Kim Clement spáir um
Önnu Nicole Smith, SMELLTU HÉR
Ég hætti aldrei að undrast náð Guðs. Komandi vakning mun sýna meistaraverk Guðs í náð hans og kærleika til deyjandi heims.
Það er mikilvægt að horfa á þessa glötuðu kynslóð með augum Guðs og fyllast undrun yfir þeirri náð sem Guð er í þann mund að veita þessu glataða fólki.
Ef við höldum áfram að líta á okkur sem heilagri en aðra gætum við allt eins lent í sama flokki og þeir sem Jesús talaði um í 21. kafla Matteusarguðspjalls.
Matteusarguðspjall 21:31
Hvor þeirra tveggja gjörði vilja föðurins?" Þeir svara: "Sá fyrri." Þá mælti Jesús: "Sannlega segi ég yður: Tollheimtumenn og skækjur verða á undan yður inn í Guðs ríki.
Postulasagan 4:33
Postularnir báru vitni um upprisu Drottins Jesú með miklum krafti, og mikil náð var yfir þeim öllum.
Guð blessi þig!
