Endukoma Jesú | Snorri Óskarsson

Endukoma Jesú | Snorri Óskarsson

Endurkoma Jesú Krists

by Snorri Óskarsson | 30.nóvember 2025

Heimahópurinn 30.nóv 2025

Við fengum góðan gest til að koma og flytja kennslu úr Orðinu síðastliðinn fimmtudag eða Snorra Óskarsson. Þið getið hlustað á kennsluna með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan. Kennslan var um endurkomu Jesú Krists og hvernig við getum lesið í táknin sem Biblían gefur okkur varðandi þessa tíma.

Matteusarguðspjall 24:3

Þá er hann sat á Olíufjallinu, gengu lærisveinarnir til hans og spurðu hann einslega: Seg þú oss, hvenær verður þetta? Og hvert mun tákn komu þinnar og endaloka veraldar?

Guð blessi þig!

Ef þig langar að prufa að koma í heimahópinn okkar þá ertu hjartanlega velkomin. Við hittumst á Borg í Grímsnesi klukkan 19:15 alla fimmtudaga. Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um heimilsfang og mögulegt far með trúsystkinum ef þú ert til dæmis Í Reykjavík eða nágrenni.

Hebreabréfið 10:25

Vanrækið ekki safnaðarsamkomur yðar eins og sumra er siður, heldur uppörvið hver annan, og það því fremur sem þér sjáið að dagurinn færist nær.

SOTK – Við viljum sjá Jesús 2. hluti

SOTK – Við viljum sjá Jesús 2. hluti

Jóhannesarguðspjall 12:21

Þeir komu til Filippusar frá Betsaídu í Galíleu, báðu hann og sögðu: Herra, oss langar að sjá Jesú.

Að þekkja Jesú verður að vera aðalviðleitni lífs okkar. Margt getur tekið tíma okkar í kristnu lífi, en ekkert er jafn mikilvægt og að þekkja Jesú. Þú getur þekkt ritningarnar án þess að þekkja sjálfan Drottin.

Jóhannesarguðspjall 5:39-40

Þér rannsakið ritningarnar, því í þeim hyggist þér eiga eilíft líf. Og það eru þær, sem vitna um mig, -40- en þér viljið ekki koma til mín og öðlast lífið.

Farísearnir voru fræðimenn í lögmálinu og Gamla Testamentinu, en þeir þekktu ekki Drottinn, né höfund Ritningarinnar, Heilagan Anda.
Eitt af helstu vandamálum Biblíuskólanna er að nemendur læra fyrst og fremst fræðilega þekkingu á ritningunum og áætlunum Guðs. En þú getur haft allt það – án þess að þekkja Jesú.

Jóhannesarguðspjall 17:3

En það er hið eilífa líf að þekkja þig, hinn eina sanna Guð, og þann sem þú sendir, Jesú Krist.

Að þekkja Jesú sem persónulegan vin eru mestu forréttindi sem við höfum, ekki bara að vita um Hann, heldur að þekkja Hann í raun. Jesús sagði lærisveinunum að Hann væri vinur þeirra. Þetta var ekki yfirborðslegt samband, daglega höfðu þeir aðgang að Honum, töluðu við Hann um allt og heyrðu Hann tala til þeirra á hverjum degi. Þessi jarðneska ganga sem lærisveinarnir áttu með Jesú var mynd af því sambandi sem Hann vill eiga við okkur í dag.

Jóhannesarguðspjall 14:25-29

Þetta hef ég talað til yðar, meðan ég var hjá yður. -26- En hjálparinn, andinn heilagi, sem faðirinn mun senda í mínu nafni, mun kenna yður allt og minna yður á allt það, sem ég hef sagt yður. -27- Frið læt ég yður eftir, minn frið gef ég yður. Ekki gef ég yður eins og heimurinn gefur. Hjarta yðar skelfist ekki né hræðist. -28- Þér heyrðuð, að ég sagði við yður: Ég fer burt og kem til yðar. Ef þér elskuðuð mig, yrðuð þér glaðir af því, að ég fer til föðurins, því faðirinn er mér meiri. -29- Nú hef ég sagt yður það, áður en það verður, svo að þér trúið, þegar það gerist.

Jóhannesarguðspjall 14:18

Ekki mun ég skilja yður eftir munaðarlausa. Ég kem til yðar.

Lærisveinarnir urðu uggandi þegar Jesús sagði að Hann myndi fara burt, þeir gátu ekki skilið hvað Hann var að reyna að segja þeim. Við vitum nú í baksýn að Jesús var að tala um dauða sinn, upprisu og uppstigningu til himna. En Jesús sagði líka mjög skýrt að eftir að Hann færi myndi Hann koma aftur til þeirra, ekki í skilningi endurkomu Jesú í framtíðinni, heldur í því að koma til þeirra í Andanum.

Þegar Heilagur Andi kom á hvítasunnu voru ekki aðeins þeir sem voru í efra herberginu fullir krafts, heldur hófst einnig nýr tími, hlutverk Heilags Anda í því að gera Jesú sýnilegan og raunverulegan í lífi okkar.

Jóhannesarguðspjall 14:21

Sá sem hefur boðorð mín og heldur þau, hann er sá sem elskar mig. En sá sem elskar mig, mun elskaður verða af föður mínum, og ég mun elska hann og birta honum sjálfan mig.

Orðið „birta“ í þessu versi er á grísku emphanizō (ἐμφανίζω).

Strongs 718. emphanizō merkir: að birtast persónulega, sýna sig, opinbera sig skýrt eða sýnilega.

Eftir dauða sinn og áður en Hann steig upp til himna birtist Jesús lærisveinunum og öðrum að minnsta kosti tólf sinnum.

• Á leiðinni til Emmaus — Lúk. 24:15
• Maríu Magdalenu — Mark. 16:9
• Postulunum 11 — Jóh. 20:20
• Hann birtist 500 manns í einu — 1. Kor. 15:6

Fyrra Korintubréf 15:4

Að hann var grafinn, að hann reis upp á þriðja degi samkvæmt ritningunum -5- og að hann birtist Kefasi, síðan þeim tólf. -6- Því næst birtist hann meira en fimm hundruð bræðrum í einu, sem flestir eru á lífi allt til þessa, en nokkrir eru sofnaðir. -7- Síðan birtist hann Jakobi, því næst postulunum öllum.

Við sjáum þessa opinberun Jesú þegar Hann birtist fólki og gerir það alveg ljóst að Hann var ekki farinn á stað þar sem ekki væri hægt að ná til Hans. Hann vildi að þeir vissu að Hann væri enn þeim aðgengilegur.

Vandamálið

Vandinn er sá að sumum kristnum hefur verið kennt að svona samband við Jesú sé ekki aðgengilegt, nema við mjög sérstakar, sjaldgæfar aðstæður. Þetta viðhorf er í andstöðu við Ritninguna; Jesús sagði: „Ég mun opinbera sjálfan mig fyrir yður.“

Ég hef oft heyrt vitnað í orð Páls: „Því að vér lifum í trú, en sjáum ekki.“ (2. Korintubréf 5:7)

Það sem Páll postuli var í raun að segja er að við göngum ekki í andanum eftir því sem við sjáum í hinu náttúrulega í þessum heimi. Raunveruleikinn er sá að við göngum í trú eftir því sem við sjáum í andanum. Þegar við reynum að eiga samband við ósýnilegan anda getur það verið erfitt, við þurfum að ganga inn í veruleika Drottins, sem er andi. Með augum hjartans göngum við inn í andaheiminum og eigum samfélag við Hann.

Guð skapaði tvö ríki: hið ósýnilega og hið sýnilega. Bæði þessi ríki eru raunveruleg og hið ósýnilega er í raun enn raunverulegra en hið sýnilega.

Kólossubréfið 1:16

Enda var allt skapað í honum í himnunum og á jörðinni, hið sýnilega og hið ósýnilega, hásæti og herradómar, tignir og völd. Allt er skapað fyrir hann og til hans.

Þegar við endurfæddumst var okkur gefin hæfileikinn til að sjá inn í hið ósýnilega ríki Guðs.

Síðara Korintubréf 4:18

Vér horfum ekki á hið sýnilega, heldur hið ósýnilega. Hið sýnilega er stundlegt, en hið ósýnilega eilíft.

Oft heyrum við að Guð sé ósýnilegur og það er rétt, Hann er ósýnilegur fyrir þeim sem lifa aðeins í þessum náttúrulega jarðneska heimi.

Fyrra Tímóteusarbréf 1:17

Konungi eilífðar, ódauðlegum, ósýnilegum, einum Guði sé heiður og dýrð um aldir alda. Amen.

Hins vegar töluðu bæði Jesús og Páll postuli um raunveruleikann á því að sjá inn í ríki Guðs meðan við erum enn hér á jörðinni.

Jóhannesarguðspjall 3:3

Jesús svaraði honum: Sannlega, sannlega segi ég þér: Enginn getur séð Guðs ríki, nema hann fæðist að nýju.

Gríska orðið fyrir sjá í þessu versi er G3700 og G3708, sem merkir bókstaflega eða myndrænt: að sjá, að horfa, að skynja.

Ríki Guðs er á sviði andans. Þegar þú fæddist á ný fékkstu hæfileikann til að sjá hið ósýnilega með augum hjartans.

Guðlegt inngrip eða að ganga í því ríki

Mikill ruglingur hefur skapast vegna þessara tveggja sjónarmiða sem virðast stangast á. Stundum grípur Guð inn í líf manna með yfirnáttúrulegu inngripi, þar sem Hann birtist mönnum, sama gildir um englana. En ganga okkar með Guði byggist ekki á slíkum einstökum yfirnáttúrulegum heimsóknum. Ég hef sjálfur fengið nokkrar slíkar heimsóknir í lífi mínu þar sem Drottinn birtist mér. En ég lærði af Heilögum Anda að oft eru þessi inngrip eins og vínberin úr fyrirheitna landinu. Mundu þegar Móse sendi njósnarana inn í landið og þeir komu til baka með safarík, fullþroskuð vínber, allt þetta var þeim aðgengilegt ef þeir vildu aðeins ganga inn í landið og taka það í sínar hendur. Sama gerir Guð oft við fólk sitt: Hann gefur þeim reynslu og í gegnum hana segir Hann: „Ég vil að þú lærir að ganga í þessu”.

Guð stígur sjaldan inn í okkar heim, við þurfum að stíga inn í Hans

Þegar Jóhannes postuli var á eyjunni Patmos fékk hann stórfenglega opinberun af Drottni og gekk inn í ríki Guðs, hið eilífa ríki. Úr þeirri reynslu varð Opinberunarbókin til. Skoðum hvernig þetta gerðist.

Opinberunarbókin 1:10

Ég var hrifinn í anda á Drottins degi og heyrði að baki mér raust mikla, sem lúður gylli,

Fyrst skaltu taka eftir þessu: Jóhannes var Í ANDANUM á degi Drottins. Hvað þýðir það, „í andanum“? Það merkir að hugur hans, hjarta og einbeiting voru á Drottni, og hann var meðvitaður um ríki andans. Þetta var ástand sem hann bar sjálfur ábyrgð á, hann setti sig í stöðu þar sem hann gat gengið inn í ríki Guðs. Jóhannes hafði þegar stigið inn í ríki andans, ríki Guðs, og þar, í því ástandi, heyrði hann rödd Guðs og sá Drottin.

Þegar Pétur gekk á vatninu var það ekki yfirnáttúrlegt inngrip. Pétur þurfti að stíga út úr bátnum og ganga á vatninu. En um leið og athygli hans færðist yfir á þennan jarðneska heim, öldurnar og vindinn, byrjaði hann að sökkva. Um leið og hann tók augun af Drottni, sem var í andanum, missti hann fókus og kraft.

Við höldum áfram með þetta í næstu grein…

Guð blessi þig!

Útvalning og brúðurin

Útvalning og brúðurin

Útvalning og brúðurin

by Sigurður Júlíusson | 30.október 2025

Heimahópurinn 30.okt 2025

Í þessari kennslu fer ég í ítarlega í hvað það er að vera útvalin(n) og hvernig það tengist brúði Jesú Krists. Mjög áhugavert hvernig Biblían kennir okkur að þetta átti sér stað löngu áður en við fæddumst og meira að segja áður en heimurinn var grundvallaður. Guð ákvað fyrirfram að útvelja sér brúði á hverri öld og sjá til þess að hún yrði hrein og lítalaus.

Efesusbréfið 1:4

Áður en heimurinn var grundvallaður hefur hann útvalið oss í Kristi, til þess að vér værum heilagir og lýtalausir fyrir honum. Í kærleika sínum -5- ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í Jesú Kristi. Sá var vilji hans og velþóknun -6- til vegsemdar dýrð hans og náð, sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni. -7- Í honum, fyrir hans blóð eigum vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra. -8- Svo auðug er náð hans, sem hann gaf oss ríkulega með hvers konar vísdómi og skilningi.

Guð blessi þig!

Ef þig langar að prufa að koma í heimahópinn okkar þá ertu hjartanlega velkomin. Við hittumst á Borg í Grímsnesi klukkan 19:15 alla fimmtudaga. Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um heimilsfang og mögulegt far með trúsystkinum ef þú ert til dæmis Í Reykjavík eða nágrenni.

Hebreabréfið 10:25

Vanrækið ekki safnaðarsamkomur yðar eins og sumra er siður, heldur uppörvið hver annan, og það því fremur sem þér sjáið að dagurinn færist nær.

Tvö sæði á jörðinni

Tvö sæði á jörðinni

Tvö sæði á jörðinni

by Sigurður Júlíusson | 23.október 2025

Heimahópurinn 23.okt 2025

Í þessari kennslu rek ég alveg frá fyrstu Mósebók til Opinberunarbókarinnar hvernig það hafa verið tvö sæði frá upphafi sögunnar. Sæði Guðs og sæði djöfulsins. Mjög áhugaverð kennsla úr Biblíunni varðandi hvernig heimurinn er og hvernig við getum glöggt séð þessi tvö sæði að verki í gegnum aldirnar sem og í dag.

Matteusarguðspjall 13:28-30

Hann svaraði þeim: Þetta hefur einhver óvinur gjört. Þjónarnir sögðu við hann: Viltu, að vér förum og tínum það? -29- Hann sagði: Nei, með því að tína illgresið, gætuð þér slitið upp hveitið um leið. -30- Látið hvort tveggja vaxa saman fram að kornskurði. Þegar komin er kornskurðartíð, mun ég segja við kornskurðarmenn: Safnið fyrst illgresinu og bindið í bundin til að brenna því, en hirðið hveitið í hlöðu mína.

Guð blessi þig!

Ef þig langar að prufa að koma í heimahópinn okkar þá ertu hjartanlega velkomin. Við hittumst á Borg í Grímsnesi klukkan 19:15 alla fimmtudaga. Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um heimilsfang og mögulegt far með trúsystkinum ef þú ert til dæmis Í Reykjavík eða nágrenni.

Hebreabréfið 10:25

Vanrækið ekki safnaðarsamkomur yðar eins og sumra er siður, heldur uppörvið hver annan, og það því fremur sem þér sjáið að dagurinn færist nær.

SOTK – Við viljum sjá Jesús

SOTK – Við viljum sjá Jesús

Jóhannesarguðspjall 12:21

Þeir komu til Filippusar frá Betsaídu í Galíleu, báðu hann og sögðu: Herra, oss langar að sjá Jesú.

Við lifum á upplýsingaöldinni, aldrei áður í sögunni hefur svo mikill fjöldi upplýsinga verið aðgengilegur venjulegu fólki. Maður getur tengst internetinu og fundið nánast hvaða upplýsingar sem er á örfáum mínútum. Spámaðurinn Daníel spáði fyrir um þessa tíma þegar hann sagði að tími myndi koma þar sem þekkingin myndi aukast.

Daníel 12:4 — orðið „aukast“ hér er hebreska orðið 7232. rabab, raw-bab’; frumorð [að uppruna til hið sama og H7231 með hugmyndina um að skjóta fram]; að skjóta ör:—

Þetta þýðir að þekkingin muni aukast eins hratt og ör flýgur í gegnum loftið — með öðrum orðum, þekkingin mun aukast á ótrúlegum hraða. Við erum vitni að þessu í dag.

Fyrra Korintubréf 15:46

En hið andlega kemur ekki fyrst, heldur hið jarðneska, því næst hið andlega.

Ekki aðeins er þekkingin að aukast á ótrúlegum hraða í hinu náttúrulega, heldur einnig í hinu andlega. Þessi kynslóð kristinna manna hefur fengið meiri ljós og skilning en nokkur fyrri, en vandinn er sá að þetta getur leitt til blekkingar sem fær okkur til að trúa því að vegna þess að við vitum meira séum við andlegri. Því miður er það ekki þannig.

Kirkjan hefur tilhneigingu til að fylla fólk af kenningum frekar en að fylla það af Guði sjálfum.

Við höfum afþreyingu, við höfum tónlist — stundum góða tónlist — en höfum við Jesú opinberaðan í okkar hópi? Við syngjum réttu lögin, nýjustu sálmana, en höfum við Jesú? Dyggð hverjar kirkju eða kristilegs stofnunar liggur ekki svo mikið í kenningunum sjálfum, heldur í gæðum þess fólks sem hún mótar

Fyrra Korintubréf 13:2

Og þótt ég hefði spádómsgáfu og vissi alla leyndardóma og ætti alla þekking, og þótt ég hefði svo takmarkalausa trú, að færa mætti fjöll úr stað, en hefði ekki kærleika, væri ég ekki neitt.

Þessi vers í ritningunni varpa ljósi á hættuna sem fylgir því að vita sannleikann en lifa ekki samkvæmt honum. Blekkingin að vita sannleikann án þess að lifa honum er mjög sterk blekking — hún á rætur sínar í hroka, og Guð stendur gegn þeim sem eru hrokafullir. Grunneinkenni ríkis Satans er hroki, og Guð hatar hroka; reyndar segir hann að það sé honum viðurstyggð (Orðskv. 16:5).

Hroki hefur þúsund andlit, en sá hroki sem oft fylgir þekkingu er ein helsta orsök andlegrar ófrjósemi í kirkjunni í dag.

Jesús starfaði í valdi ríkisins, en kenningar hans snerust fyrst og fremst um einkenni ríkisins — um skapgerð þess sem tilheyrir Guðs ríki. Fjallræðan er mynd af slíkri ríkisskapgerð.

Í dag snýst svo margt um hvernig eigi að ná árangri, hvernig eigi að verða eitthvað, hvernig eigi að komast áfram. En hvenær heyrðir þú síðast prédikun um Fjallræðuna? Orðin „hógvær“ og „lítillátur“ heyrast varla lengur í boðskap kirkjunnar — þó að Jesús hafi skýrt sagt: „Lærið af mér.“

Matteusarguðspjall 11:29

Takið á yður mitt ok og lærið af mér, því að ég er hógvær og af hjarta lítillátur, og þá munuð þér finna hvíld sálum yðar.

Markmið okkar er ekki að vita meira, heldur að verða meira — að verða líkari Honum.
Raunveruleikinn er sá að því meira sem þú verður Honum líkur, því betur skilur þú og öðlast sanna innsýn í eðli Hans og alheimsins sem Hann hefur skapað. „Hinir hógværu munu erfa jörðina“ og Hann gefur meiri náð hinum auðmjúku.

Aðalhlutverk kirkjunnar er að móta fólk í ímynd Jesú Krists.
Þetta hefst með hjálpræðinu, en við erum hólpin til þess að verða eitthvað meira — að verða lík Jesú. Jesús sagði: „Þegar ég verð hafinn upp, mun ég draga alla menn til mín.“ Heimurinn leitar enn að kristnum mönnum — “Krist-líkum” einstaklingum.

Eining meðal trúaðra er í beinu hlutfalli við það hve mikið þeir hafa orðið líkir Jesú.
Eining er ekki eitthvað sem við getum náð utan þess að verða Honum lík. Jakob spurði: „Hvaðan koma stríð?“ — þ.e. stríðin innan kirkjunnar sjálfrar.

Jakobsbréf 4:1

Af hverju koma stríð og af hverju sennur meðal yðar? Af hverju öðru en girndum yðar, sem heyja stríð í limum yðar?

Jóhannesarguðspjall 17:22

Og ég hef gefið þeim þá dýrð, sem þú gafst mér, svo að þeir séu eitt, eins og við erum eitt,

Jóhannesarguðspjall 12:23

Ég í þeim og þú í mér, svo að þeir verði fullkomlega eitt, til þess að heimurinn viti, að þú hefur sent mig og að þú hefur elskað þá, eins og þú hefur elskað mig.

Guð sagði við Móse

Önnur Mósebók 33:19

Ég vil láta allan minn ljóma (Góðvild) líða fram hjá þér

Það er gæska Guðs í okkur sem dregur fólk til Drottins.

Þegar Grikkirnir (heiðingjarnir) komu til Filippusar og sögðu: „Við viljum sjá Jesú,“ var það löngun sem bergmálar í gegnum aldirnar — og heimurinn bíður enn eftir að sjá Jesú birtast í kirkjunni.

Jesús sagði

Matteusarguðspjall 18:20

Því að hvar sem tveir eða þrír eru saman komnir í mínu nafni, þar er ég mitt á meðal þeirra.

Þú gætir sagt: „Ég trúi því að þetta sé satt!“ En nema fólk finni Hann og upplifi Hann, þá er Hann ekki raunverulegur fyrir manninn úti á götu. Trúin verður að verða að veruleika — að opinberun.

Tvær tegundir fólks eru dregnar fram í Malakí.

Fyrsti hópurinn talaði með hrokafullum orðum og lýsti því sem fyllti hjarta þeirra: „hvaða ávinning höfum vér af því haft, að vér varðveittum boðorð hans?“ (Malakía 3:14). Hroki þeirra hafði blekkt þá.

Hinn hópurinn talaði oft sín á milli um eðli hins æðislega Guðs síns. Drottinn sagði að þessi hópur muni verða skartgripir í kórónu hans, og þá mun verða greint hver þjónar Guði og hver ekki. (Malakía 3:16–18).

Heimurinn segir enn í dag: „Við viljum sjá Jesú.“

Síðara Korintubréf 4:6

Því að Guð, sem sagði: Ljós skal skína fram úr myrkri! hann lét það skína í hjörtu vor, til þess að birtu legði af þekkingunni á dýrð Guðs, eins og hún skín frá ásjónu Jesú Krists.

Hebreabréfið 12:2

Beinum sjónum vorum til Jesú, höfundar og fullkomnara trúarinnar. Vegna gleði þeirrar, er beið hans, leið hann þolinmóðlega á krossi, mat smán einskis og hefur nú setst til hægri handar hásæti Guðs.

Guð blessi þig!