John Wesley

John Wesley var enskur prestur og predikari sem leiddi eina mestu vakningu í sögu Englands á átjándu öld. Upp úr starfi hans spratt meþódistahreyfingin sem í dag telur tugi milljóna manna um allan heim. Hann predikaði í yfir fimmtíu ár, oft úti undir berum himni, og ferðaðist um landið á hestbaki. Hann fæddist 17. júní árið 1703 í Epworth á Englandi og fór heim til Drottins 2. mars 1791, 87 ára gamall.
Brandur úr báli dreginn
John var fimmtánda barn prestshjónanna Samuels og Susönnu Wesley. Susanna var einstök móðir. Hún kenndi börnum sínum sjálf, var ströng en kærleiksrík og gaf sér tíma til að tala við hvert og eitt þeirra um Guð í hverri viku, þó að börnin væru mörg.
Þegar John var fimm ára kviknaði í prestssetrinu um miðja nótt. Allir komust út nema John sem var fastur uppi á lofti. Á síðustu stundu tókst nágrönnum að standa hver á öxlum annars og ná honum út um glugga, rétt áður en þakið hrundi. Móðir hans trúði því að Guð hefði bjargað honum í ákveðnum tilgangi og John vísaði oft til sín sem „brands úr báli dregins“.
Sakaría 3:2
En Drottinn mælti til Satans: "Drottinn ávíti þig, Satan! Drottinn, sem útvalið hefir Jerúsalem, ávíti þig! Er ekki þessi eins og brandur úr báli dreginn?"
Heilagi klúbburinn
John stundaði nám í Oxford og varð prestur í ensku kirkjunni. Þar stofnuðu hann og Charles bróðir hans lítinn hóp ungra manna sem hittust reglulega til að lesa Biblíuna, biðja, fasta og heimsækja fanga og fátæka. Aðrir nemendur gerðu grín að þeim og kölluðu þá „heilaga klúbbinn“ og „meþódista“, því þeir lifðu eftir svo föstum reglum og aðferðum. Nafnið festist.
En þrátt fyrir allan aga og öll góð verk hafði John engan frið. Hann var að reyna að verða nógu góður fyrir Guð.
Óveðrið á hafinu
Árið 1735 fóru bræðurnir sem trúboðar til nýlendunnar Georgíu í Ameríku. Á leiðinni yfir hafið lenti skipið í miklu óveðri. Stórsjór braut yfir skipið og John var dauðhræddur. En á skipinu var hópur af þýskum mórövum sem héldu ró sinni og sungu sálma á meðan óveðrið geisaði, líka konurnar og börnin. Þegar John spurði einn þeirra hvort þau væru ekki hrædd, svaraði hann: „Nei, við erum ekki hrædd við að deyja.“ John skildi að þetta fólk átti eitthvað sem hann átti ekki.
Starfið í Georgíu mistókst og John sneri heim til Englands árið 1738, niðurbrotinn. Hann skrifaði í dagbókina sína að hann hefði farið til Ameríku til að snúa indíánum en hver ætti að snúa honum sjálfum?
Hjartað hlýnaði
Þann 24. maí 1738 fór John, frekar tregur, á samkomu í Aldersgate-stræti í London. Þar var lesið upp úr formála Marteins Lúthers að Rómverjabréfinu, þar sem Lúther lýsir því hvernig Guð breytir hjartanu fyrir trúna á Krist. John skrifaði um kvöldið í dagbókina sína að um klukkan korter í níu hefði hann fundið hjarta sitt undarlega hlýna. Hann fann að hann treysti Kristi, Kristi einum, til hjálpræðis og að hann hafði fengið fullvissu um að Kristur hefði tekið burt syndir hans.
Rómverjabréfið 8:16
Sjálfur andinn vitnar með vorum anda, að vér erum Guðs börn.
Þessi fullvissa, að andinn sjálfur vitni með okkar anda að við séum Guðs börn, varð eitt af meginstefum í predikun Johns alla ævi.
Úti á túnum
Vinur hans, predikarinn George Whitefield, var farinn að predika úti undir berum himni fyrir námumönnum og verkafólki sem aldrei kom í kirkju. John fannst það fyrst nánast synd að predika annars staðar en í kirkju. En þann 2. apríl 1739 lét hann undan og predikaði fyrir um þrjú þúsund manns í útjaðri Bristol. Þetta varð upphafið að því sem einkenndi þjónustu hans upp frá því.
Á næstu fimmtíu árum reið John um Bretland og Írland. Talið er að hann hafi ferðast um 400 þúsund kílómetra, að mestu á hestbaki, og predikað yfir 40 þúsund sinnum. Hann byrjaði oft að predika klukkan fimm að morgni, áður en fólk fór til vinnu. Oft réðust æstir múgar á hann, köstuðu grjóti og drullu og reyndu jafnvel að drepa hann, en hann hélt ró sinni og hélt áfram að predika. Námumennirnir hlustuðu með tárin rennandi niður sótug andlitin.
Helgun og hópar
John vissi að það væri ekki nóg að fólk frelsaðist á samkomu. Það þurfti að vaxa í trúnni. Hann skipulagði þá sem tóku trú í litla hópa sem hittust vikulega, báðu saman, játuðu syndir sínar hver fyrir öðrum og hvöttu hver annan. Hann kallaði líka til leikmenn sem predikara, sem var mjög umdeilt á þeim tíma.
John lagði mikla áherslu á helgun, að kristinn maður ætti að vaxa í kærleika og heilagleika og að Guð gæti hreinsað hjartað af synd. Charles bróðir hans samdi yfir sex þúsund sálma sem gáfu hreyfingunni söng og margir þeirra eru enn sungnir í dag.
Hebreabréfið 12:14
Stundið frið við alla menn og helgun, því að án hennar fær enginn Drottin litið.
William Branham kenndi að Guð hefði endurreist kirkjuna í skrefum. Fyrst kom réttlæting af trú með Marteini Lúther, síðan helgunin með John Wesley og svo skírn heilags anda í hvítasunnuvakningunni. Wesley var maðurinn sem Guð notaði til að kalla kirkjuna aftur til heilags lífernis.
Til síðasta dags
John predikaði fram á síðustu ár ævi sinnar. Nokkrum dögum áður en hann dó skrifaði hann síðasta bréfið sitt til Williams Wilberforce, sem barðist gegn þrælahaldi á breska þinginu, og hvatti hann til að gefast aldrei upp í baráttunni. John Wesley lést í London 2. mars 1791. Meðal síðustu orða hans voru: „Það besta af öllu er að Guð er með okkur.“
Ég trúi því að saga Johns sé saga margra kristinna manna í dag. Hann var prestur, hann las Biblíuna, hann bað og gerði góð verk, en hann átti ekki persónulega fullvissu um frelsun. Allt breyttist þegar hann hætti að treysta á sjálfan sig og treysti Kristi einum.
Sendiboðar safnaðaraldanna
William Branham kenndi að Guð hefði sent hverri af sjö safnaðaröldunum í Opinberunarbókinni sinn sendiboða:
- Efesus: Páll postuli
- Smýrna: Íreneus
- Pergamos: Marteinn frá Tours
- Þýatíra: Kólumba
- Sardes: Marteinn Lúther
- Fíladelfía: John Wesley
- Laódíkea: William Branham
Ert þú tilbúinn?
Þú getur vitað að þú ert Guðs barn. Ekki vegna þess hvað þú hefur gert heldur vegna þess sem Jesús gerði á krossinum. Ef þú hefur ekki þessa fullvissu, biddu Guð um að láta anda sinn vitna með þínum anda. Og ef þú hefur hana, biddu hann um að kveikja í þér eld eins og hann kveikti í John Wesley.
„Verið minnugir leiðtoga yðar, sem Guðs orð hafa til yðar talað. Virðið fyrir yður, hvernig ævi þeirra lauk, og líkið eftir trú þeirra. Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami og um aldir.“ Heb 13:7-8
