Ljós í myrkri
Velkomin á síðuna. Hér er stutt kynningarmyndband fyrir þig sem mun aðeins birtast við fyrstu heimsókn.
Guð blessi þig!
Og hann rak manninn burt og setti kerúbana fyrir austan Edengarð og loga hins sveipanda sverðs til að geyma vegarins að lífsins tré.
Þegar Adam féll var hann rekinn úr Edensgarði og tveir kerúbar vörðu innganginn og lokuðu þannig fyrir alla von um endurkomu til Edens. Aðgangur að lífsins tré var nú bannaður. Það er áhugavert að þessir kerúbar, sem vörðu lífsins tré, voru einnig yfir náðarstólnum ofan á sáttmálaskránni og vörðu nærveru Guðs.
-18- Og þú skalt gjöra tvo kerúba af gulli, af drifnu smíði skalt þú gjöra þá á hvorum tveggja loksendanum.
-22- Og þar vil ég eiga samfundi við þig og birta þér ofan af arkarlokinu millum beggja kerúbanna, sem standa á sáttmálsörkinni, allt það, er ég býð þér að flytja Ísraelsmönnum.
Biblían lýsir ekki hlutverki kerúbanna í miklum smáatriðum, en við vitum þó að þeir voru tengdir komu og brottför dýrðar Guðs. Þegar Ísrael syndgaði, hóf dýrð og nærvera Drottins að hverfa frá þjóðinni. Við sjáum að þegar dýrð og nærvera Drottins yfirgaf Ísrael, þá fór hún með kerúbunum.
Hér sjáum við dýrðina lyftast frá musterinu
En kerúbarnir stóðu hægra megin við musterið, þegar maðurinn gekk inn, og fyllti skýið innra forgarðinn. -4- En dýrð Drottins hóf sig frá kerúbunum yfir á þröskuld musterisins. Varð musterið þá fullt af skýmekki, en forgarðurinn fylltist ljóma af dýrð Drottins.
Hér sjáum við dýrðina lyftast frá borginni
Nú hófu kerúbarnir vængi sína og hjólin færðust til samtímis þeim, en dýrð Ísraels Guðs var uppi yfir þeim. -23- Og dýrð Drottins hóf sig upp frá borginni og staðnæmdist á fjallinu, sem er fyrir austan borgina.
Þessir kerúbar tengdust dýrð Guðs, og þegar þeir hreyfðust, hreyfðist dýrðin með þeim. Þegar dýrðin sneri loks aftur til Ísraels, kom hún á sama hátt (Esekíel 43:3–4).
Þessir kerúbar eru verndarar nærveru Guðs og munu einnig taka þátt í andlegri orustu ef eitthvað ógnar nærveru Guðs utan vilja hans.
Til að komast að lífsins tré verður maður að komast framhjá kerúbunum
Þar sem kerúbarnir tákna nærveru Guðs, er aðeins hægt að nálgast lífsins tré (JESÚ) í gegnum opinbera nærveru Guðs. Það er aðeins þegar við erum meðvituð um nærveru hans að við getum raunverulega átt samfélag við Jesú.
Þessir kerúbar voru yfir náðarstólnum, og það er aðeins fyrir miskunn Guðs sem við getum komið til hans, gengið með honum og kynnst honum. Náðarsætið huldi sáttmálaskrána, nærveru Guðs og það er aðeins þegar við treystum miskunn hans að við höfum aðgang að nærveru hans. Að reiða sig á miskunn Guðs er að koma til hans í djúpstæðri auðmýkt; án hennar getum við hvorki séð né þekkt Guð.
Sælir eru hógværir, því að þeir munu jörðina erfa.
Adam erfði jörðina, hún var gefin honum af Guði, en Adam gaf hana í hendur Satan með synd sinni. Það er aðeins þegar við komum að lífsins tré með hreint hjarta og raunverulega auðmýkt að aðgangur er aftur veittur að paradís á þessari jörð og að lífsins tré.
Í Edensgarði gátu Adam og Eva séð Guð og gengið með honum, en þetta tapaðist þegar þau voru rekin úr garðinum og síðan þá hefur maðurinn stöðugt reynt að finna Eden á ný. En það finnst ekki í gegnum tréð um þekkingu góðs og ills, heldur í gegnum lífsins tré og aðgangurinn fæst aðeins með sannri auðmýkt.
Auðmýkt má lýsa sem algjöru trausti á Guði fyrir öllu lífi okkar
Hvar sem þessar undursamlegu verur sjá sanna auðmýkt, er veittur aðgangur að lífsins tré. Í andlega heiminum er auðmýkt séð sem yfirhula eða klæði sem jafnvel englar viðurkenna og virða. Hún sést sem merki mikillar virðingar og stöðu í andaheiminum.
Þessi auðmýkt eða fullkomið traust á Guði gefur okkur rétt til inngöngu að lífsins tré.
Hroki mannsins lægir hann, en hinn lítilláti mun virðing hljóta.
Já, svo segir hinn hái og háleiti, hann sem ríkir eilíflega og heitir Heilagur: Ég bý á háum og helgum stað, en einnig hjá þeim, sem hafa sundurkraminn og auðmjúkan anda, til þess að lífga anda hinna lítillátu og til þess að lífga hjörtu hinna sundurkrömdu.
En því meiri er náðin, sem hann gefur. Þess vegna segir ritningin: Guð stendur í gegn dramblátum, en auðmjúkum veitir hann náð.
Það er tími nú sem aldrei fyrr, fyrir þetta tré að blómstra að fullu á jörðinni svo þjóðirnar megi hljóta lækningu
Hver sem eyra hefur, hann heyri hvað andinn segir söfnuðunum. Þeim er sigrar, honum mun ég gefa að eta af lífsins tré, sem er í Paradís Guðs.
Á miðju stræti borgarinnar, beggja vegna móðunnar, var lífsins tré, sem ber tólf sinnum ávöxt. Á mánuði hverjum gefur það ávöxt sinn, og blöð trésins eru til lækningar þjóðunum.
Þetta er tréð sem Jesús talaði um í Jóhannesarguðspjalli, 15. kafla.
-5- Ég er vínviðurinn, þér eruð greinarnar. Sá ber mikinn ávöxt, sem er í mér og ég í honum, en án mín getið þér alls ekkert gjört.
-4- Verið í mér, þá verð ég í yður. Eins og greinin getur ekki borið ávöxt af sjálfri sér, nema hún sé á vínviðnum, eins getið þér ekki heldur borið ávöxt, nema þér séuð í mér.
Við höfum þau forréttindi að fá að verða grein á þessu tré, til lækningar fyrir þjóðirnar
Eina leiðin til að bera ávöxt er að vera í honum (Lífsins tré).
Ef þér haldið boðorð mín, verðið þér stöðugir í elsku minni, eins og ég hef haldið boðorð föður míns og er stöðugur í elsku hans.
Guð blessi þig!
Að þessu sinni skoðuðum við áhugaverða hluti í síðari hluta Jesajabókar. Þar eru mjög sterkir spádómar um Jesú Krist og innsýn inn í karakter Guðs. Einnig fórum við í fyrsta kafla opinberunarbókarinnar og ég lagði fram þá opinberun sem Guð hefur gefið mér á því hver Hann er sem faðir, sonur og heilagur andi. Þríeinn Guð.
Fyrra Jóhannesarbréf 5:20
Vér vitum, að Guðs sonur er kominn og hefur gefið oss skilning, til þess að vér þekkjum sannan Guð. Vér erum í hinum sanna Guði fyrir samfélag vort við son hans Jesú Krist. Hann er hinn sanni Guð og eilífa lífið.
Jesaja 62: 6-7
Þér sem minnið Drottin á, unnið yður engrar hvíldar! -7- Ljáið honum engrar hvíldar, uns hann reisir Jerúsalem og gjörir hana vegsamlega á jörðinni.
Guð blessi þig!
Ef þig langar að prufa að koma í heimahópinn okkar þá ertu hjartanlega velkomin. Við hittumst á Borg í Grímsnesi klukkan 19:15 alla fimmtudaga. Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um heimilsfang og mögulegt far með trúsystkinum ef þú ert til dæmis Í Reykjavík eða nágrenni.
Vanrækið ekki safnaðarsamkomur yðar eins og sumra er siður, heldur uppörvið hver annan, og það því fremur sem þér sjáið að dagurinn færist nær.
Andrew Murray, mikill predikari og Guðs maður var spurður í miðri vakningu: “Hver er mikilvægasta þörfin hjá okkur kristnum?”
Svar hans var einfalt og afgerandi: ALGJÖR UPPGJÖF
Það sem hann var í raun að segja var þetta: Sál kristins manns þarf að lúta anda hans. Flestir kristnir lifa trúarlífi sínu þar sem sálin, hugurinn, tilfinningaranar og viljinn er við stjórnvölinn. Þeir gera það sem þeim finnst (tilfinningar) vera rétt, þeir fylgja því sem rökhugsunin segir (hugurinn), og vilji þeirra verður að þræli tilfinninga og skynsemi.
Hyggja holdsins er dauði, en hyggja andans líf og friður.
Flestir kristnir eru undir stjórn náttúrulegrar hugsunar sinnar og tilfinninga. Þeir lifa eftir þessum öflugu hvötum sem móta lífsstíl þeirra.
Sundurmarið hjarta er lykillinn að persónulegri vakningu
Við viljum gera hlutina á okkar hátt, en Guð kallar okkur til algjörrar undirgefni við vilja sinn. Lífstréð í Edensgarðinum táknaði Jesú og við eigum að lifa af lífi hans, með huga hans og tilfinningum hans. Aðeins Hans líf, tilfinningar og vilji eiga að fá að birtast í gegnum sál sem hefur gefist fullkomlega Honum.
Þegar við komum á þann stað að við getum hvorki treyst tilfinningum okkar, huga okkar né eigin getu og þegar við skiljum að við getum ekki lifað rétt nema í Honum, þá kemur brot í sálina sem leyfir anda Drottins að brjótast fram. Sál okkar þarf að verða þjónn anda okkar, sem er stöðugt tengdur Drottni.
En sá er samlagar sig Drottni er einn andi ásamt honum.
Við verðum að afhenda stjórnina til anda okkar sem er í einingu við Guð. Réttri röð er komið á þegar andinn hefur forystu, síðan sálin og loks líkaminn. Þegar þessi röð hefur náð festu í lífi okkar, þá göngum við inn í raunverulegt andlegt líf, verðum andlegir menn og konur.
Við þurfum að læra að beygja okkur fyrir andanum
Í miðri krísu, bíðið. Látið ekki tilfinningarnar stjórna og yfirtaka ykkur. Lærið að hvíla í Guði, að þegja og leyfa andanum að stíga fram. Látið ekki holdlegan huga taka yfir, bíðið, snúið ykkur að Drottni sem býr í ykkur. Finnið nærveru hans, leyfið honum að tala og fylgið síðan leiðsögn hans.
En ég segi: Lifið í andanum, og þá fullnægið þér alls ekki girnd holdsins.
Þegar kemur að ákvörðunum sem þú þarft að taka leyfðu ekki tilfinningunum að stjórna. Segðu sál þinni að hafa hljótt. Náttúrulegur hugur þinn mun reyna að segja þér hvað þú eigir að gera. Notaðu viljann til að hindra að tilfinningarnar leiði þig, segðu NEI við sálina. Bíddu. hafðu hljótt. Hvíldu í Guði. Snúðu þér að Drottni, finndu nærveru hans og leyfðu honum að koma fram í anda þínum.
Flestir kristnir velja lífsförunauta sína út frá tilfinningum, þeir „verða ástfangnir“ í tilfinningalegu viðbragði. En ef valið byggist eingöngu á tilfinningum og þú „fellur“ fyrir einhverjum, þá getur þú líka auðveldlega „fallið frá“ þeirri ást. Ástin byrjar sem ákvörðun og tilfinningarnar fylgja síðan á eftir.
Guð getur sýnt þér hver lífsförunauti þinn er en það byggir ekki á þrá þinni eða hugsun, heldur á því að þekkja vilja Guðs. Þú kemst á þann stað þegar tilfinningar þínar og hugsanir hafa róast og þú átt samfélag við Guð þar sem þú vilt einungis vera viss um að þekkja vilja hans.
Vertu kyrr og heyrðu
Konur farið ekki til einhvers manns og segið: „Guð hefur sýnt mér að þú sért lífsförunautur minn.“ Þið munuð hræða hann frá ykkur! Guð vakti athygli Adams á Evu og hann sagði: „Þetta er gott.“ En við þurfum sjálf að vera í réttri stöðu, í stjórn á eigin sál.
Við höfum ekki raunverulega opinberun um skilyrðislausan kærleika Guðs til okkar, þess vegna óttumst við að hlutirnir muni ekki ganga upp. En ef ég legg niður allar metnaðarvonir, langanir og það sem ég vil, get ég þá treyst Guði til að gera það sem rétt er fyrir mig?
Tilfinningin ótti heldur okkur frá Guði
Ótti er ekki í elskunni. Fullkomin elska rekur út óttann. Því að óttinn felur í sér hegningu, en sá sem óttast er ekki fullkominn í elskunni.
Ef við skiljum fullkominn kærleika Guðs til okkar þá munum við aldrei óttast framar. Páll postuli var reiðubúinn, hvenær sem væri, að leggja niður líf sitt. Hann óttaðist hvorki dauðann né að yfirgefa þennan heim.
Því að lífið er mér Kristur og dauðinn ávinningur.
Ótti var ekki hluti af lífi Hans.
Getur þú treyst Guði fyrir lífi þínu? Algjör undirgefni er forsenda þess að ganga í andanum með Drottni. Ef við sem kristnir menn lifum lífi sem er aðskilið frá Drottni, lífi sem við höfum sjálf í fastri stjórn, þá glötum við tilgangi og ástæðu tilveru okkar, að vera sameinuð Drottni, sem er tré lífsins.
Hugur Drottins er tré lífsins.
Vilji Drottins er tré lífsins.
Tilfinningar Drottins eru tré lífsins.
Tilfinningar Hans og/eða kærleikur gefur okkur kraft. Vilji Hans gefur okkur öryggi. Hugur Hans vekur okkur til lífs. Þegar við göngum í einingu við Hann, þá fyrst göngum við inn í hið raunverulega líf sem Guð ætlaði okkur.
en þér viljið ekki koma til mín og öðlast lífið.
-13- Sæll er sá maður, sem öðlast hefir speki, sá maður, sem hyggindi hlotnast.
-17- Vegir hennar eru yndislegir vegir og allar götur hennar velgengni. -18- Hún er lífstré þeim, sem grípa hana, og sæll er hver sá, er heldur fast í hana.
-22- þá munu þær verða líf sálu þinni og prýði fyrir háls þinn. -23- Þá muntu ganga óhultur veg þinn og eigi drepa við fæti. -24- Þegar þú leggst til hvíldar, þarft þú ekki að hræðast, og hvílist þú, mun svefninn verða vær. -25- Þú þarft ekki að óttast skyndilega hræðslu, né eyðilegging hinna óguðlegu, þegar hún dynur yfir.
Ef við höldum boðorð hans, mun Hann dvelja í okkur. En hver eru boðorð Hans? Einfaldlega boðorð kærleikans.
Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hver annan, eins og ég hef elskað yður.
Ef við erum í Honum, þá verður kærleikur hans í oss, og við göngum með Honum í andanum, stöðugt nærð og styrkt af tré lífsins.
Sælir eru þeir, sem þvo skikkjur sínar (fylgja boðorðum Hans – KJV). Þeir fá aðgang að lífsins tré og mega ganga um hliðin inn í borgina.
Guð blessi þig!
Og Drottinn Guð lét upp vaxa af jörðinni alls konar tré, sem voru girnileg á að líta og góð að eta af, og lífsins tré í miðjum aldingarðinum og skilningstréð góðs og ills.
Við höfum séð að sem kristnir einstaklingar höfum við tvær leiðir, tvo möguleika til að lifa. Við lifum annað hvort af tré lífsins eða af skilningstré góðs og ills, þetta ákvarðar og skilgreinir hvers konar kristnir einstaklingar við erum, sálarlegir eða andlegir. Strax frá upphafi setti Guð fram tvær leiðir fyrir mannkynið til að lifa – önnur leiðin leiddi til lífs, hin til dauða.
Við getum annað hvort lifað eftir sálu okkar, óháð Guði, eða eftir anda okkar, tengdum Guði.
Sjálfstæði hefur alltaf verið kjarninn í málinu, og öll verk Guðs í lífi okkar miða að því markmiði að færa okkur aftur í algjöra háðstöðu við Drottin. Þetta samband er skýrt skilgreint af Jesú í Jóhannesarguðspjalli, 15. kafla.
Ég er hinn sanni vínviður, og faðir minn er vínyrkinn. -2- Hverja þá grein á mér, sem ber ekki ávöxt, sníður hann af, og hverja þá, sem ávöxt ber, hreinsar hann, svo að hún beri meiri ávöxt. -3- Þér eruð þegar hreinir vegna orðsins, sem ég hef talað til yðar. -4- Verið í mér, þá verð ég í yður. Eins og greinin getur ekki borið ávöxt af sjálfri sér, nema hún sé á vínviðnum, eins getið þér ekki heldur borið ávöxt, nema þér séuð í mér. -5- Ég er vínviðurinn, þér eruð greinarnar. Sá ber mikinn ávöxt, sem er í mér og ég í honum, en án mín getið þér alls ekkert gjört.
Vegna sterkrar, fallinnar, sjálfstæðisþrár okkar getur verið erfitt að læra að dvelja eða lifa í Jesú, það krefst dauða sjálfstæðisins, dauða sem við streitumst hart oft gegn. Ef við beygjum okkur ekki undir vald Jesú höfum við í raun ekkert raunverulegt vald, enga raunverulega undirstöðu til að lifa af lífi annars og nýta þá eiginleika og það líf sem við eigum í Drottni.
Jesús gerði það mjög skýrt að Hann lifði lífi sínu í algjörri háðstöðu við Föður sinn.
Hann var í Guðs mynd. En hann fór ekki með það sem feng sinn að vera Guði líkur.
Ég megna eigi að gjöra neitt af sjálfum mér. Ég dæmi samkvæmt því, sem ég heyri, og dómur minn er réttvís, því að ég leita ekki míns vilja, heldur vilja þess, sem sendi mig.
Þegar Jesús var sakaður um að hafa gert kraftaverk á hvíldardegi var vörnin hans einfaldlega sú að segja: Ég gerði það ekki.
Þessu svaraði Jesús og sagði við þá: Sannlega, sannlega segi ég yður: Ekkert getur sonurinn gjört af sjálfum sér, nema það sem hann sér föðurinn gjöra. Því hvað sem hann gjörir, það gjörir sonurinn einnig. -20- Faðirinn elskar soninn og sýnir honum allt, sem hann gjörir sjálfur. Hann mun sýna honum meiri verk en þessi, svo að þér verðið furðu lostnir.
Við sjáum hér hvernig Jesús gerði aldrei neitt óháður Föður sínum. Hann sagði að Hann gerði aðeins það sem Hann sá Guð, Föður sinn, gera. Með öðrum orðum, ef einhverjir áttu í vandræðum með þetta, þurftu þeir að taka það upp við Guð, því það var Hann sem hóf verkið.
Hvaða hlutverk hefur sál okkar í lífi okkar?
Hugur okkar, tilfinningar og vilji eru ætlaðir til að vera þjónar anda okkar, en ekki að leiða né hefja neitt að sjálfu sér. Þegar við tölum um að deyja sjálfinu, erum við að tala um að deyða sjálfstæði sálarinnar. Sál okkar vill stjórna lífi okkar og mun gera það ef við leyfum því. Náttúrulegi hugurinn mun ekki skila réttri niðurstöðu, hann starfar samkvæmt eigin dagskrá sem byggist á sjálfstæði og sjálfsbjargarviðleitni.
Sá sem vill sjá lífi sínu borgið, mun týna því, en sá sem týnir því, mun öðlast líf.
Því að hver sem vill bjarga lífi sínu, mun týna því, og hver sem týnir lífi sínu mín vegna, mun finna það. -26- Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn og fyrirgjöra sálu sinni? Eða hvað gæti maður látið til endurgjalds fyrir sálu sína?
Sálin er til þess að tjá vilja og líf Jesú í anda okkar. Við erum hvött til að dvelja í Drottni Jesú, en hvað þýðir það?
-4- Verið í mér, þá verð ég í yður. Eins og greinin getur ekki borið ávöxt af sjálfri sér, nema hún sé á vínviðnum, eins getið þér ekki heldur borið ávöxt, nema þér séuð í mér.
-7- Ef þér eruð í mér og orð mín eru í yður, þá biðjið um hvað sem þér viljið, og yður mun veitast það.
Hvað þýðir að DVELJA Í JESÚ og hvernig gerum við það?
Jesús sagði: „Ef þér varðveitið boðorð mín, munuð þér dvelja í mér.“ Hvaða boðorð? Átti Jesús virkilega við öll boðorðin? Átti Hann við öll þau boðorð sem Hann hafði gefið, eða var Hann að tala um boðorðin tíu?
Hvað var Jesús í raun að segja hér?
Jesús var ekki að tala um að halda lögmálið, Hann var að tala um nýja og lifandi leið, leið sem sprottin var af hvötum, ekki af reglusetningum. Þetta var leið sem átti rætur sínar í áformum hjartans, ekki í safni reglna.
Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hver annan, eins og ég hef elskað yður.
Þetta var skrifað í samhengi við það að dvelja í Kristi. Í Jóhannesarguðspjalli 15:4–5 setti Jesús málið fram á mjög einfaldan hátt og sagði: Ef þér elskið, munuð þér dvelja í mér.
Þér eruð vinir mínir, ef þér gjörið það, sem ég býð yður.
Sambandið sem Jesús þráir að eiga við okkur snýst um samrýmanleika, ef við verðum að kærleika, verðum við samrýmanleg Jesú, sem er kærleikur. Jesús var mjög skýr um það sem krafist er af okkur.
Meistari, hvert er hið æðsta boðorð í lögmálinu? -37- Hann svaraði honum: Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum. -38- Þetta er hið æðsta og fremsta boðorð. -39- Annað er þessu líkt: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. -40- Á þessum tveimur boðorðum hvílir allt lögmálið og spámennirnir.
Til þess að dvelja í Drottni verðum við að dvelja í kærleika ávallt. Farið þið út úr kærleikanum, farið þið út úr Guði – svo einfalt er það.
Hins vegar vill sálin ekki gera þetta, hún vill ráða sjálf, velja hvern, hvað og hvernig hún elskar – fyrst og fremst sjálfa sig.
Vandamálið er að ef við elskum eigið líf, munum við missa það.
Sá kærleikur sem Guð krefst af okkur er Hans eigin tegund af kærleika, kærleikur sem leggur líf sitt niður fyrir aðra.
Guð er kærleikur, sérhver hvöt í hjarta Hans á rætur sínar í kærleika, því það er hver Hann er. Öll verk Hans spretta af kærleika – jafnvel í dómi sínum gerir Guð það sem er mest kærleiksríkt mögulegt.
Þegar við dveljum og lifum í slíkum kærleika, lifum við í Guði, og þá biðjum við og það verður gjört – því það er Guð sem biður í hjarta okkar, þar sem við höfum orðið eitt með Honum.
Öll önnur leið til að lifa kemur frá skilningstré góðs og ills og leiðir til dauða. Tré lífsins, það að dvelja í Jesú, leiðir til dýrlegasta og fyllingarríkasta lífs sem hægt er að ímynda sér.
Guð blessi þig!
Stórkostlegt er að segja frá því að 6 manns tóku skírn úr hópnum þann 17.apríl sl. og óskum við þeim innilega til hamingju með að taka þá ákvörðun að fylgja Jesú af öllu hjarta. Guð er nálægur og maður sér að það er mikið að gerast víðsvegar um landið. Það er mín bæn að margir mættu rísa upp og stíga inn í allt það sem Guð hefur fyrirbúið fyrir þessa síðustu tíma. Að við mættum öll vakna fyrir alvöru eins og Páll postuli minnist á í einu af bréfum sínum. Biðjum Guð að senda fleiri verkamenn, því akrarnir eru sannarlega hvítir til uppskeru.
Í síðasta heimahóp tókum við fyrir þrjár sögur fyrir í Biblíunni sem fjalla um storma og hvaða það er sem kann að valda því að lífið getur verið algjörlega á hvolfi hjá okkur stundum. Með þessum sögum sýnir Guð okkur hver rétta leiðin er til að komast út úr þeim hrakningum sem við kunnum að vera komin í. Það er mikilvægt að bregðast hratt við, því sumir stormar geta hreinlega verið upp á líf og dauða. Munum einnig að í mörgum tilfellum er það Drottinn sjálfur sem sendir storminn þegar við erum farin af réttri braut til þess að sýna okkur við höfum brugðist, syndgað, óhlýðnast eða erum á einhverri leið sem kann að enda á helslóðum. Þetta gerir Hann í kærleika sýnum til þess að við snúum okkur hratt til baka til Hans og höldum á ný rétta leið sem leiðir til lífs og blessunar.
Sálmarnir 107:23-30
Þeir sem fóru um hafið á skipum, ráku verslun á hinum miklu vötnum, -24- þeir hafa séð verk Drottins og dásemdir hans á djúpinu. -25- Því að hann bauð og þá kom stormviðri, sem hóf upp bylgjur þess. -26- Þeir hófust til himins, sigu niður í djúpið, þeim féllst hugur í neyðinni. -27- Þeir römbuðu og skjögruðu eins og drukkinn maður, og öll kunnátta þeirra var þrotin. -28- Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni, og hann leiddi þá úr angist þeirra. -29- Hann breytti stormviðrinu í blíðan blæ, svo að bylgjur hafsins urðu hljóðar. -30- Þá glöddust þeir, af því að þær kyrrðust, og hann lét þá komast í höfn þá, er þeir þráðu.
Guð blessi þig!
Ef þig langar að prufa að koma í heimahópinn okkar þá ertu hjartanlega velkomin. Við hittumst á Borg í Grímsnesi klukkan 19:15 alla fimmtudaga. Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um heimilsfang og mögulegt far með trúsystkinum ef þú ert til dæmis Í Reykjavík eða nágrenni.
Vanrækið ekki safnaðarsamkomur yðar eins og sumra er siður, heldur uppörvið hver annan, og það því fremur sem þér sjáið að dagurinn færist nær.