Að fara á næsta stig

by Sigurður Júlíusson | 16.apríl 2026

Heimahópurinn 16.apríl 2026

Kennslan á þessu sinni er í beinu framhaldi af síðustu grein Secret of the Kingdom sem var virkilega áhrifarík. Í kennslunni tek ég fram að óvinurinn hefur ekkert vald nema það sem Guð leyfir og vil ég árétta að það á við hina trúuðu. Óvinurinn hefur frjálsan vilja og ræðst gegn öllu sem hann getur á þessari jörð enda er hún undir hans valdi tímabundið. Þeir sem hafa gefist Guði á vald eru hinssvegar undir vernd svo framarlega sem þeir eru í vilja Guðs. 

Filippíbréfið 3:13-14

Bræður, ekki tel ég sjálfan mig enn hafa höndlað það. -14- En eitt gjöri ég. Ég gleymi því, sem að baki er, en seilist eftir því, sem framundan er, og keppi þannig að markinu, til verðlaunanna á himnum, sem Guð hefur kallað oss til fyrir Krist Jesú.

Guð blessi þig!

Ef þig langar að prufa að koma í heimahópinn okkar þá ertu hjartanlega velkomin. Við hittumst á Borg í Grímsnesi klukkan 19:15 alla fimmtudaga. Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um heimilsfang og mögulegt far með trúsystkinum ef þú ert til dæmis Í Reykjavík eða nágrenni.

Hebreabréfið 10:25

Vanrækið ekki safnaðarsamkomur yðar eins og sumra er siður, heldur uppörvið hver annan, og það því fremur sem þér sjáið að dagurinn færist nær.