Forskriftin sem aldrei bregst
Heimahópurinn 22.janúar 2026
Í kennslu dagsins fór ég yfir nokkur af helstu grundvallaratriðinum sem vert er að rifja upp reglulega. Hvað það er sem við þurfum að gera daglega til að lifa sigrandi lífi sem kristnir einstaklingar. Hvað það er að hafa heilbrigðan Guðs ótta og hvernig lífi við þurfum að lifa ef við viljum að Guð heyri og svari bænum okkar.
- Þú endurfæddist ekki til þess að verða þræll syndavenja, ótta, sjúkleika eða ósigra.
- Þú frelsaðist til þess að verða sigurvegari.
- Þú frelsaðist ekki til þess að ólanið elti þig.
- Þú frelsaðist til þess að þér vegnaði vel.
- Þú frelsaðist til þess að verða lifandi ímynd Drottins Jesú Krists.
- Það eru engin mistök eða lýti í Honum!
Þriðja Jóhannesarbréf, 2. vers:
Ég bið þess, minn elskaði, að þér vegni vel í öllum hlutum og að þú sért heill heilsu, eins og sálu þinni vegnar vel.
Guð blessi þig!
Ef þig langar að prufa að koma í heimahópinn okkar þá ertu hjartanlega velkomin. Við hittumst á Borg í Grímsnesi klukkan 19:15 alla fimmtudaga. Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um heimilsfang og mögulegt far með trúsystkinum ef þú ert til dæmis Í Reykjavík eða nágrenni.
Hebreabréfið 10:25
Vanrækið ekki safnaðarsamkomur yðar eins og sumra er siður, heldur uppörvið hver annan, og það því fremur sem þér sjáið að dagurinn færist nær.
