Greinar · Nýja testamentið fyrir áramót

Dagur 2 · Matteus 8–14

Dagur 2 · Matteus 8–14Sigurður Júlíusson
Sækja hljóðskrá

Annar dagurinn í lestrarátakinu Lesum Nýja testamentið fyrir áramót. Í dag lásum við Matteus 8–14 og hér er hugleiðing dagsins. Í gær heyrðum við hvað Jesús sagði. Í dag sjáum við hvað Hann gerði. Ýttu á spilarann hér fyrir ofan til að hlusta.

Í hugleiðingunni

  • Trú og vald – hundraðshöfðinginn skildi valdið í Orði Jesú: „Mæl þú aðeins eitt orð.“
  • Sjúkdómar og illir andar – Jesús gaf lærisveinunum vald til að reka út anda og lækna hvers kyns sjúkdóma.
  • Eins og meistarinn – nægja má lærisveini að vera sem meistari hans.
  • Krossinn og fyrsta sætið – að kannast við Krist og setja Hann ofar öllu öðru.
  • Jóhannes og Elía – efinn í fangelsinu, táknin sem staðfesta og auðmýktin sem þjónninn þarf.
  • Lastmæli gegn Andanum og orðin okkar – af orðum þínum muntu sýknaður verða.
  • Tóma húsið – það er ekki nóg að reka út, húsið þarf að fyllast af Heilögum anda.
  • Sáðmaðurinn – hvernig jarðvegur erum við fyrir Orðið?

Matteusarguðspjall 11:28

Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld.

Spurning dagsins

Hvaða byrði þarf ég að koma með til Jesú?

Á morgun lesum við Matteus 15–21.

Skráðu þig á póstlistann

Við sendum þér svo tilkynningu þegar nýtt efni kemur á síðuna, ásamt öðrum gagnlegum upplýsingum sem tengjast Ljós í myrkri.