Greinar · Nýja testamentið fyrir áramót

Dagur 1 · Matteus 1–7

Dagur 1 · Matteus 1–7Sigurður Júlíusson

Fyrsti dagurinn í lestrarátakinu Lesum Nýja testamentið fyrir áramót. Í dag lásum við Matteus 1–7 og hér er hugleiðing dagsins. Ýttu á spilarann hér fyrir ofan til að hlusta.

Í hugleiðingunni

  • Ættartalan – Tamar, Rahab, Rut og „kona Úría“. Guð skrifar brotið fólk inn í sögu frelsarans.
  • Spádómarnir og draumar Jósefs – Betlehem og Egyptaland, og Jósef sem hlýddi strax í hvert skipti.
  • Freistingin – valdið sem djöfullinn bauð var honum „í hendur fengið“, og Jesús svaraði með Orðinu.
  • Fjallræðan – sæluboðin, salt og ljós og lögmálið sem Jesús kom til að uppfylla.
  • Fyrirgefning og sátt – ef bróðir þinn hefur eitthvað á móti þér, farðu fyrst og sættstu við hann.
  • Að gera vilja Föðurins – húsið á bjarginu.

Matteusarguðspjall 7:24

Hver sem heyrir þessi orð mín og breytir eftir þeim, sá er líkur hyggnum manni, er byggði hús sitt á bjargi.

Spurning dagsins

Er ég að byggja á bjargi, eða heyri ég bara?

Á morgun lesum við Matteus 8–14.

Skráðu þig á póstlistann

Við sendum þér svo tilkynningu þegar nýtt efni kemur á síðuna, ásamt öðrum gagnlegum upplýsingum sem tengjast Ljós í myrkri.