Greinar

Lesum Nýja testamentið fyrir áramót

Síðustu vikur ársins eru oft þær annasömustu. Vinna, boð, undirbúningur og alls konar annríki. Það er auðvelt að fara í gegnum allan desember og átta sig svo á því í lok árs að maður gaf sér varla tíma með Drottni og orðinu hans.

Þess vegna langar mig að bjóða þér að gera eitt með okkur í ár: að lesa allt Nýja testamentið fyrir áramót. Við byrjum miðvikudaginn 25. nóvember og lesum 7 kafla á dag. Þá klárum við 31. desember, á gamlársdag.

Af hverju að lesa Nýja testamentið?

Orð Guðs er ekki bara gömul bók. Það er lifandi og það talar inn í líf okkar í dag. Þegar við lesum það reglulega breytir það hugsunum okkar, styrkir trúna og leiðir okkur nær Jesú.

Sálmarnir 119:105

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.

Hebreabréfið 4:12

Því að orð Guðs er lifandi og kröftugt og beittara hverju tvíeggjuðu sverði og smýgur inn í innstu fylgsni sálar og anda, liðamóta og mergjar, það dæmir hugsanir og hugrenningar hjartans.

Margir hafa aldrei lesið Nýja testamentið frá upphafi til enda. Ef þú ert einn af þeim, þá er þetta frábært tækifæri. Og ef þú hefur lesið það áður, þá veistu að það er alltaf eitthvað nýtt sem Guð sýnir manni.

Beinum sjónum okkar að Jesú

Á þessum árstíma, í kringum hátíðarnar, viljum við minnast Jesú og benda á hann. Hann er ástæðan fyrir því að við fögnum, og það var hann sem Guð sendi í heiminn til að frelsa okkur. Hvaða betri leið er til að ljúka árinu en að kynnast honum betur í gegnum orðið?

Lúkasarguðspjall 2:10–11

Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs.

Jóhannesarguðspjall 1:14

Og Orðið varð hold, hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika, og vér sáum dýrð hans, dýrð, sem sonurinn eini á frá föðurnum.

Í guðspjöllunum fáum við að ganga með Jesú, heyra hann tala og sjá hvað hann gerði. Í Postulasögunni sjáum við hvernig fyrsta kirkjan fór út með fagnaðarerindið í krafti heilags anda. Í bréfunum lærum við hvað það þýðir að lifa í Kristi. Og í Opinberunarbókinni endum við árið á því að horfa fram til þess að hann kemur aftur.

Hvernig förum við að?

Nýja testamentið er 260 kaflar. Ef við lesum 7 kafla á dag frá 25. nóvember klárum við á 37 dögum, og síðasta daginn lesum við 8 kafla. Það tekur flesta um 20 til 30 mínútur á dag.

  • Finndu fastan tíma. Morgnarnir henta mörgum best, áður en dagurinn tekur yfir. Aðrir lesa í hádeginu eða á kvöldin.
  • Byrjaðu á bæn. Biddu Guð að tala til þín í gegnum það sem þú lest.
  • Ekki gefast upp þótt þú dettir úr takti. Ef þú missir úr dag, haltu bara áfram þar sem þú ert. Það skiptir meira máli að halda áfram en að gera allt fullkomlega.
  • Hlustaðu ef það hentar betur. Það er fínt að hlusta á Biblíuna í bílnum eða á göngu.
  • Fáðu einhvern með þér. Það er miklu auðveldara að halda út þegar maður les með öðrum. Bjóddu maka, vini eða fjölskyldunni að vera með.

Matteusarguðspjall 4:4

Eigi lifir maðurinn á einu saman brauði, heldur á hverju því orði, sem fram gengur af Guðs munni.

Lestraráætlunin

Hér er áætlunin dag fyrir dag. Þú getur vistað þessa síðu og kíkt á hana á hverjum degi.

DagurDagsetningLestur
1mið. 25. nóv.Matteus 1–7
2fim. 26. nóv.Matteus 8–14
3fös. 27. nóv.Matteus 15–21
4lau. 28. nóv.Matteus 22–28
5sun. 29. nóv.Markús 1–7
6mán. 30. nóv.Markús 8–14
7þri. 1. des.Markús 15–16, Lúkas 1–5
8mið. 2. des.Lúkas 6–12
9fim. 3. des.Lúkas 13–19
10fös. 4. des.Lúkas 20–24, Jóhannes 1–2
11lau. 5. des.Jóhannes 3–9
12sun. 6. des.Jóhannes 10–16
13mán. 7. des.Jóhannes 17–21, Postulasagan 1–2
14þri. 8. des.Postulasagan 3–9
15mið. 9. des.Postulasagan 10–16
16fim. 10. des.Postulasagan 17–23
17fös. 11. des.Postulasagan 24–28, Rómverjabréfið 1–2
18lau. 12. des.Rómverjabréfið 3–9
19sun. 13. des.Rómverjabréfið 10–16
20mán. 14. des.1. Korintubréf 1–7
21þri. 15. des.1. Korintubréf 8–14
22mið. 16. des.1. Korintubréf 15–16, 2. Korintubréf 1–5
23fim. 17. des.2. Korintubréf 6–12
24fös. 18. des.2. Korintubréf 13, Galatabréfið 1–6
25lau. 19. des.Efesusbréfið 1–6, Filippíbréfið 1
26sun. 20. des.Filippíbréfið 2–4, Kólossubréfið 1–4
27mán. 21. des.1. Þessaloníkubréf 1–5, 2. Þessaloníkubréf 1–2
28þri. 22. des.2. Þessaloníkubréf 3, 1. Tímóteusarbréf 1–6
29mið. 23. des.2. Tímóteusarbréf 1–4, Títusarbréfið 1–3
30fim. 24. des.Fílemonsbréfið, Hebreabréfið 1–6
31fös. 25. des.Hebreabréfið 7–13
32lau. 26. des.Jakobsbréfið 1–5, 1. Pétursbréf 1–2
33sun. 27. des.1. Pétursbréf 3–5, 2. Pétursbréf 1–3, 1. Jóhannesarbréf 1
34mán. 28. des.1. Jóhannesarbréf 2–5, 2. Jóhannesarbréf, 3. Jóhannesarbréf, Júdasarbréfið
35þri. 29. des.Opinberunarbókin 1–7
36mið. 30. des.Opinberunarbókin 8–14
37fim. 31. des.Opinberunarbókin 15–22

Viltu vera með?

Það væri gaman að heyra frá þér ef þú ætlar að taka þátt. Deildu þessu endilega með fólkinu þínu og hvettu aðra til að vera með. Ímyndaðu þér ef margir á Íslandi myndu ganga inn í nýtt ár eftir að hafa lesið allt Nýja testamentið.

Síðara Tímóteusarbréf 3:16–17

Sérhver ritning er innblásin af Guði og nytsöm til fræðslu, til umvöndunar, til leiðréttingar, til menntunar í réttlæti, til þess að sá, sem tilheyrir Guði, sé albúinn og hæfur gjör til sérhvers góðs verks.

Guð blessi þig í lestrinum.

Skráðu þig á póstlistann

Við sendum þér svo tilkynningu þegar nýtt efni kemur á síðuna, ásamt öðrum gagnlegum upplýsingum sem tengjast Ljós í myrkri.