Hvers vegna þrengingar?

Biblían segir okkur að hver og einn þurfi að taka sinn kross daglega og fylgja Jesú. En hvað þýðir það í raun og veru? Í þessari grein langar mig að skoða það sem við sem kristin þurfum að ganga í gegnum, af hverju Guð leyfir þrengingar í lífi þeirra sem elska hann, og hvað það kostar að lofa Guð þegar allt gengur illa.
Lúkasarguðspjall 9:23
Og hann sagði við alla: „Hver sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér, taki kross sinn daglega og fylgi mér.
Að kannast við Krist í heiminum í dag
Að kannast við Krist í heiminum í dag veldur oft ofsóknum eða mótstöðu. Við erum álitin skrítin, þröngsýn eða jafnvel fordómafull, og svona mætti lengi telja. Þetta ætti samt ekki að koma okkur á óvart, því Jesús sagði sjálfur að svona yrði þetta.
Jóhannesarguðspjall 15:18
Ef heimurinn hatar yður, þá vitið, að hann hefur hatað mig fyrr en yður.
Síðara Tímóteusarbréf 3:12
Já, allir, sem lifa vilja guðrækilega í samfélagi við Krist Jesú, munu ofsóttir verða.
Af hverju leyfir Guð þrengingar?
En það er líka annað sem fylgir því að vera kristinn. Kristið fólk gengur í gegnum alls konar erfiðleika. Sumir missa ástvini, jafnvel börnin sín, og aðrir ganga í gegnum þvílíkar þrengingar að það er erfitt að skilja það. Af hverju?
Getur verið að Guð leyfi þetta til þess að þeir sem tilheyra honum raunverulega fái að upplifa erfiða hluti, bæði sársaukann og síðan sigurinn, til þess að geta deilt honum áfram með öðrum? Höfum við eitthvað í Biblíunni sem staðfestir þetta? Já, Páll postuli skrifar einmitt um þetta:
Síðara Korintubréf 1:3-4
Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists, faðir miskunnsemdanna og Guð allrar huggunar, sem huggar oss í sérhverri þrenging vorri, svo að vér getum huggað alla aðra í þrengingum þeirra með þeirri huggun, sem vér höfum sjálfir af Guði hlotið.
Ég hef sjálfur gengið í gegnum miklar þrengingar í mínu lífi og það sem ég hef lært í gegnum þær er kærleikur Krists og náð Krists. Ég kann miklu betur að meta hana eftir að hafa gert mistök og fundið að Guð elskar mig samt. Því flest gerum við mistök, oftar en einu sinni og oftar en tvisvar.
Síðara Korintubréf 12:9
Og hann hefur svarað mér: „Náð mín nægir þér; því að mátturinn fullkomnast í veikleika.“ Því vil ég helst hrósa mér af veikleika mínum, til þess að kraftur Krists megi taka sér bústað í mér.
Job – ég þekkti þig af afspurn
Við sjáum líka í orðinu að Guð leyfir stundum erfiðum hlutum að eiga sér stað í lífi fólks, eins og hjá Job. Hann varð fyrir miklum hremmingum, missti börnin sín og varð mjög veikur. Af hverju leyfði Guð þetta? Af hverju sagði Guð við Satan, þegar hann gekk fram fyrir hann:
Jobsbók 1:8
Og Drottinn mælti til Satans: „Veittir þú athygli þjóni mínum Job? því að enginn er hans líki á jörðu, maður ráðvandur og réttlátur, guðhræddur og grandvar.“
Af hverju leyfði hann að verndin væri tekin burt svo að Job færi í gegnum alla þessa erfiðleika? Svarið kemur í lok Jobsbókar:
Jobsbók 42:5
Ég þekkti þig af afspurn, en nú hefir auga mitt litið þig!
Og Guð blessaði Job mikið eftir að hann hafði gengið í gegnum allar þessar þrengingar, því hann stóðst prófið.
Jobsbók 42:10
Og Drottinn sneri við högum Jobs, þá er hann bað fyrir vinum sínum; og hann gaf Job allt sem hann hafði átt, tvöfalt aftur.
Já, Guð reynir okkur. Og er líf okkar hér á jörðinni ekki einmitt reynslutími? Guð vill sjá hvort við elskum hann raunverulega, ekki bara þegar vel gengur, heldur líka þegar illa gengur og jafnvel mjög illa. Formælum við Guði, kennum við honum um, eða tökum við þrengingunum og lofum Guð samt sem áður?
Fyrra Pétursbréf 1:6-7
Fagnið því, þótt þér nú um skamma stund hafið orðið að hryggjast í margs konar raunum. Það er til þess að trúarstaðfesta yðar, langtum dýrmætari en forgengilegt gull, sem þó stenst eldraunina, geti orðið yður til lofs og dýrðar og heiðurs við opinberun Jesú Krists.
Kostnaðurinn við lofgjörðina
Ég heyrði frábæra setningu á samkomuherferð sem ég var á fyrir stuttu í Alabama: kostnaðurinn við lofgjörðina. Hvað kostaði það þessa manneskju eða hina að standa hér og lofa Guð samt? Því það getur kostað okkur mikið. Lofum við Guð þrátt fyrir að við höfum tapað öllu sem við eigum, gengið í gegnum skilnað, misst ástvin eða einfaldlega þegar allt gengur á afturfótunum? Lofum við Guð samt og þökkum honum? Það er það sem hann hefur sagt okkur að gera.
Fyrra Þessaloníkubréf 5:18
Þakkið alla hluti, því að það er vilji Guðs með yður í Kristi Jesú.
Þetta var einmitt það sem Job gerði. Eftir að hann hafði misst allt sagði hann:
Jobsbók 1:21
Nakinn kom ég af móðurskauti og nakinn mun ég aftur þangað fara. Drottinn gaf og Drottinn tók, lofað veri nafn Drottins.
Og þegar konan hans hvatti hann til að formæla Guði svaraði hann:
Jobsbók 2:10
„Fyrst vér höfum þegið hið góða af Guði, ættum vér þá ekki einnig að taka hinu vonda?“ Í öllu þessu syndgaði Job ekki með vörum sínum.
Hebreabréfið 13:15
Fyrir hann skulum vér því án afláts bera fram lofgjörðarfórn fyrir Guð, ávöxt vara, er játa nafn hans.
Jósef – frá draumi í fangelsi
Það eru fleiri sögur í Biblíunni sem sýna þetta, eins og sagan af Jósef. Jósef dreymdi öfluga drauma um að hann yrði mikill og að bræður hans og jafnvel foreldrar myndu beygja sig fyrir honum. Hann var örugglega uppveðraður og trúði því að eitthvað mikið yrði úr lífi hans.
En hvað gerðist næst? Bræður hans höfnuðu honum og seldu hann í þrældóm. Hann endaði í fangelsi sem þræll í ókunnu landi. Það er líklega versti eða lægsti staður sem hægt er að lenda á í lífinu, að sitja í fangelsi sem útlendingur í ókunnu landi. Á þessari vegferð, sem tók um 13 ár (hann var seytján ára þegar hann var seldur og þrítugur þegar hann stóð frammi fyrir Faraó), hefur hann mögulega efast um draumana og köllun sína. Á ég raunverulega eftir að verða eitthvað?
Sálmarnir 105:17-19
þá sendi hann mann á undan þeim, Jósef var seldur sem þræll. Þeir þjáðu fætur hans með fjötrum, hann var lagður í járn, allt þar til er orð hans rættust, og orð Drottins létu hann standast raunina.
En á einu augnabliki, eftir allan þennan tíma, reisti Guð hann upp og gerði hann að næstráðanda í Egyptalandi, öflugasta ríki þess tíma, og að lífsbjörg fyrir sitt eigið fólk.
Fyrsta Mósebók 50:20
Þér ætluðuð að gjöra mér illt, en Guð sneri því til góðs, til að gjöra það, sem nú er fram komið, að halda lífinu í mörgu fólki.
Mótuð eins og gull
En til hvers þurfti Jósef að fara í gegnum allar þessar þrengingar? Er það ekki einmitt það sem Guð gerir? Hann notar þrengingar til að móta okkur og gera okkur tilbúin, svo að við getum tekist á við það verkefni sem hann hefur kallað okkur til.
Ef Guð gæfi okkur allan sinn kraft á meðan við erum enn ómótuð, hvað myndum við gera við þann kraft? Myndum við nota hann í eigin þágu? Já, líklega. En þegar Guð hefur mótað okkur og hreinsað okkur eins og gull, þá verðum við algjörlega hans. Við lifum ekki lengur fyrir okkur sjálf, eins og Páll sagði, heldur fyrir Krist.
Jesaja 48:10
Sjá, ég hefi hreinsað þig, þó eigi sem silfur, ég hefi reynt þig í bræðsluofni hörmungarinnar.
Galatabréfið 2:20
Ég er krossfestur með Kristi. Sjálfur lifi ég ekki framar, heldur lifir Kristur í mér. Lífinu, sem ég lifi nú hér á jörð, lifi ég í trúnni á Guðs son, sem elskaði mig og lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir mig.
Og það sem Guð gefur okkur, kraft og lækningamátt, reynslu notum við þá aðeins fyrir hann en ekki í eigin þágu. Það er besta lífið og það er það sem Guð er að kalla okkur til. Þess vegna leyfir hann þrengingar.
Rómverjabréfið 5:3-5
En ekki það eitt: Vér fögnum líka í þrengingunum, með því að vér vitum, að þrengingin veitir þolgæði, en þolgæðið fullreynd, en fullreyndin von. En vonin bregst oss ekki, því að kærleika Guðs er úthellt í hjörtum vorum fyrir heilagan anda, sem oss er gefinn.
Gefumst ekki upp
Biblían hefur mörg vers um þetta og aðalatriðið er að gefast ekki upp, þá munum við uppskera.
Galatabréfið 6:9
Þreytumst ekki að gjöra það sem gott er, því að á sínum tíma munum vér uppskera, ef vér gefumst ekki upp.
Páll segir í Rómverjabréfinu að hann álíti þrengingar þessa heims ekkert í samanburði við þá dýrð sem á okkur mun opinberast.
Rómverjabréfið 8:18
Ég lít svo á, að ekki séu þjáningar þessa tíma neitt í samanburði við þá dýrð, sem á oss mun opinberast.
Og Jóhannes segir að nú þegar séum við Guðs börn, en það sé ekki enn orðið ljóst hvað við munum verða. Við munum verða eins og Kristur.
Fyrsta Jóhannesarbréf 3:2
Þér elskaðir, nú þegar erum vér Guðs börn, og það er enn þá ekki orðið bert, hvað vér munum verða. Vér vitum, að þegar hann birtist, þá munum vér verða honum líkir, því að vér munum sjá hann eins og hann er.
Það eru mjög stór fyrirheit í Biblíunni um það sem Guð vill gera í lífi okkar, en við þurfum að leyfa honum það. Og við þurfum að lofa hann í öllu.
Maðurinn á bensínstöðinni
Ég lenti í áhugaverðum aðstæðum þegar ég var á ferðalagi um Bandaríkin fyrir stuttu. Ég var í Arizona, þar sem margir indíánar búa enn í dag, og stoppaði á bensínstöð til að kaupa mér eitthvað að drekka. Þegar ég kom út aftur sá ég eldri indíána sitja við hliðina á bensínstöðinni og ég fann að ég ætti að hjálpa honum.
Fyrst var ég svolítið óviss. Yrði hann ekki bara móðgaður ef ég kæmi upp að honum? En ég fann í hjarta mínu að Heilagur Andi var að leggja það á mig að fara og tala við hann. Svo ég fór til hans og spurði einfaldlega: „Þarftu hjálp?“ Hann svaraði: „Já, ég er svangur.“ Ég rétti honum seðil og hann varð mjög snortinn og þakklátur.
Þessi maður virtist vera heimilislaus og átti ekki neitt. Og vitið þið hvað hann gerði? Hann lyfti upp höndunum og lofaði Guð. Hann sagði: „Takk, Guð!“ Og ég sagði við hann: „Já, ég trúi líka á Guð, og það var Guð sem lagði það á hjarta mitt að gefa þér.“
Lofum Guð samt
Í hvaða aðstæðum sem við kunnum að vera stödd í lífinu, hversu slæmar eða erfiðar sem þær eru, lofum Guð samt. Treystum Guði samt, lyftum upp höndum til hans og lofum hann í blíðu og stríðu. Ég trúi því að ef við gerum þetta, þá höfum við staðist prófið og Guð mun reisa okkur upp og snúa við högum okkar, eins og hann gerði fyrir Job og Jósef.
Jakobsbréfið 1:12
Sæll er sá maður, sem stenst freistingu, því að þegar hann hefur reynst hæfur mun hann öðlast kórónu lífsins, sem Guð hefur heitið þeim er elska hann.
Keppumst eftir því að reynast hæf. Iðrumst fyrir syndir okkar og snúum okkur af öllu hjarta til Guðs. Í Jesú nafni.
Rómverjabréfið 8:28
Vér vitum, að þeim, sem Guð elska, samverkar allt til góðs, þeim sem kallaðir eru samkvæmt ákvörðun Guðs.
Guð blessi þig!
