Það er fátt jafn trúarstyrkjandi eins og að líta til baka og fylgjast með þeim sem fóru á undan okkur. Hvernig lífi þau lifðu, hvað þau kenndu og sjá kraftinn sem fylgdi þeim. Í þessari grein leyfi ég myndböndum af lífi þeirra að tala sínu máli en við horfðum einmitt saman á þessi myndbönd í heimahópnum okkar fyrir stuttu.
