Heimahópur

Útvalning og brúðurin

Útvalning og brúðurinSigurður Júlíusson

Útvalning og brúðurin

Sigurður Júlíusson | 30. október 2025

Heimahópurinn 30. okt 2025

Í þessari kennslu fer ég ítarlega í hvað það er að vera útvalin(n) og hvernig það tengist brúði Jesú Krists. Mjög áhugavert hvernig Biblían kennir okkur að þetta átti sér stað löngu áður en við fæddumst og meira að segja áður en heimurinn var grundvallaður. Guð ákvað fyrirfram að útvelja sér brúði á hverri öld og sjá til þess að hún yrði hrein og lýtalaus.

Efesusbréfið 1:4

Áður en heimurinn var grundvallaður hefur hann útvalið oss í Kristi, til þess að vér værum heilagir og lýtalausir fyrir honum. Í kærleika sínum -5- ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í Jesú Kristi. Sá var vilji hans og velþóknun -6- til vegsemdar dýrð hans og náð, sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni. -7- Í honum, fyrir hans blóð eigum vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra. -8- Svo auðug er náð hans, sem hann gaf oss ríkulega með hvers konar vísdómi og skilningi.

Guð blessi þig!

Ef þig langar að prufa að koma í heimahópinn okkar þá ertu hjartanlega velkomin. Við hittumst á Borg í Grímsnesi klukkan 18:15 alla fimmtudaga. Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um heimilisfang og mögulegt far með trúsystkinum ef þú ert til dæmis í Reykjavík eða nágrenni.

Hebreabréfið 10:25

Vanrækið ekki safnaðarsamkomur yðar eins og sumra er siður, heldur uppörvið hver annan, og það því fremur sem þér sjáið að dagurinn færist nær.

Skráðu þig á póstlistann

Við sendum þér svo tilkynningu þegar nýtt efni kemur á síðuna, ásamt öðrum gagnlegum upplýsingum sem tengjast Ljós í myrkri.