Steinþór Als

Gerum hjörtun okkar hrein
Steinþór Als | 15. janúar 2026
Heimahópurinn 15. jan 2026
Kennslan að þessu sinni var flutt af Steinþóri Als en hann lagði áherslu á að gera hjörtu okkar hrein svo að við getum komið í djörfung fram fyrir hásæti Guðs. Þið getið hlustað á kennsluna með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.
Fyrsta Jóhannesarbréf 3:21
Þér elskaðir, ef hjartað dæmir oss ekki, þá höfum vér djörfung til Guðs.
Guð blessi þig!
Ef þig langar að prufa að koma í heimahópinn okkar þá ertu hjartanlega velkomin. Við hittumst á Borg í Grímsnesi klukkan 18:15 alla fimmtudaga. Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um heimilisfang og mögulegt far með trúsystkinum ef þú ert til dæmis í Reykjavík eða nágrenni.
Hebreabréfið 10:25
Vanrækið ekki safnaðarsamkomur yðar eins og sumra er siður, heldur uppörvið hver annan, og það því fremur sem þér sjáið að dagurinn færist nær.
