Tvö sæði á jörðinni

by Sigurður Júlíusson | 23.október 2025

Heimahópurinn 23.okt 2025

Í þessari kennslu rek ég alveg frá fyrstu Mósebók til Opinberunarbókarinnar hvernig það hafa verið tvö sæði frá upphafi sögunnar. Sæði Guðs og sæði djöfulsins. Mjög áhugaverð kennsla úr Biblíunni varðandi hvernig heimurinn er og hvernig við getum glöggt séð þessi tvö sæði að verki í gegnum aldirnar sem og í dag.

Matteusarguðspjall 13:28-30

Hann svaraði þeim: Þetta hefur einhver óvinur gjört. Þjónarnir sögðu við hann: Viltu, að vér förum og tínum það? -29- Hann sagði: Nei, með því að tína illgresið, gætuð þér slitið upp hveitið um leið. -30- Látið hvort tveggja vaxa saman fram að kornskurði. Þegar komin er kornskurðartíð, mun ég segja við kornskurðarmenn: Safnið fyrst illgresinu og bindið í bundin til að brenna því, en hirðið hveitið í hlöðu mína.

Guð blessi þig!

Ef þig langar að prufa að koma í heimahópinn okkar þá ertu hjartanlega velkomin. Við hittumst á Borg í Grímsnesi klukkan 19:15 alla fimmtudaga. Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um heimilsfang og mögulegt far með trúsystkinum ef þú ert til dæmis Í Reykjavík eða nágrenni.

Hebreabréfið 10:25

Vanrækið ekki safnaðarsamkomur yðar eins og sumra er siður, heldur uppörvið hver annan, og það því fremur sem þér sjáið að dagurinn færist nær.