H.A. Baker

Harold Armstrong Baker, betur þekktur sem H.A. Baker, var bandarískur trúboði sem þjónaði í Tíbet og Kína í nær fjörutíu ár. Hann og Josephine, eiginkona hans, ráku heimili fyrir munaðarlaus götubörn í Kína sem þau kölluðu Adullam. Þar féll heilagur andi yfir drengina árið 1926 og þeir sáu sýnir af himnaríki, englum og endurkomu Jesú. H.A. Baker skráði það sem þeir sáu í bókinni Visions Beyond the Veil (Sýnir handan tjaldsins) sem hefur verið gefin út aftur og aftur og þýdd á fjölda tungumála. Hann fæddist árið 1881 og fór heim til Drottins árið 1971, um níræður.
Á þaki heimsins
Árið 1911 fóru Harold og Josephine sem ung trúboðshjón til Tíbet, á landamærum Kína, þar sem fáir vestrænir menn höfðu komið. Lífið þar var erfitt, kalt og hættulegt. Á þessum árum tóku þau á móti skírn heilags anda og fóru upp frá því sínar eigin leiðir. Þau höfðu ekkert trúboðsfélag á bak við sig og treystu Guði einum fyrir öllu sem þau þurftu. Árið 1919 fluttu þau til Yunnan-héraðs í suðvesturhluta Kína og settust að í Kunming, höfuðborg héraðsins.
Adullam-hellirinn
Á götum Kunming voru mörg börn sem áttu hvergi heima. Sum voru munaðarlaus, sumum hafði verið hent út og önnur höfðu flúið. Þau betluðu, stálu og sváfu þar sem þau gátu. Mörg voru veik, skítug og óttaslegin og enginn vildi hafa neitt með þau að gera.
Baker-hjónin opnuðu heimili sitt fyrir þessum drengjum. Þau gáfu þeim mat, föt og rúm, kenndu þeim að lesa og sögðu þeim frá Jesú. Heimilið kölluðu þau Adullam, eftir hellinum þar sem Davíð faldi sig og þar sem allir sem voru í nauðum söfnuðust til hans.
Fyrri Samúelsbók 22:1-2
Davíð fór þaðan og komst undan í Adúllamhelli. Og er bræður hans og allt hús föður hans fréttu það, komu þeir þangað til hans. Og allir nauðstaddir menn söfnuðust til hans og allir þeir, sem komnir voru í skuldir, svo og allir þeir, er óánægðir voru, og gjörðist hann höfðingi þeirra.
Drengirnir voru á aldrinum sex til átján ára. Flestir kunnu hvorki að lesa né skrifa þegar þeir komu og vissu nánast ekkert um Biblíuna.
Andinn fellur
Árið 1926 var Baker með bænastund með drengjunum þegar heilagur andi kom yfir þá. Drengirnir féllu á gólfið, sumir grétu og játuðu syndir sínar, aðrir töluðu tungum og lofuðu Guð. Þetta hélt áfram dag eftir dag og síðan í marga mánuði. Sumir lágu undir krafti Guðs klukkutímum saman.
Og þá fóru drengirnir að segja frá því sem þeir sáu. Þeir sáu Jesú. Þeir sáu engla og töluðu um þá eins og vini sína. Þeir lýstu himnaríki, borginni, húsunum sem Jesús hefur búið þeim sem trúa, ljósinu, söngnum og gleðinni. Þeir sáu líka hið gagnstæða, myrkrið og kvölina sem bíður þeirra sem hafna Guði, og það fyllti þá af djúpri byrði að biðja fyrir þeim sem ekki þekktu Jesú. Margir sáu endurkomu Jesú og töluðu um hana af slíkri vissu að það var eins og hún væri að gerast fyrir augum þeirra.
Matteusarguðspjall 21:16
og sögðu við hann: "Heyrir þú, hvað þau segja?" Jesús svaraði þeim: "Já, hafið þér aldrei lesið þetta: ,Af barna munni og brjóstmylkinga býrðu þér lof.'"
Sýnir handan tjaldsins
H.A. Baker var gætinn maður. Hann vissi að ekki átti að trúa öllu sem sagt er og hann bar allt sem drengirnir sögðu saman við Biblíuna. Hann tók eftir því að drengir sem höfðu aldrei lesið Opinberunarbókina lýstu hlutum sem stóðu þar. Þeir sögðu frá því sama hver í sínu lagi, án þess að hafa talað saman. Og það sem skipti hann mestu máli var að líf drengjanna breyttist. Fyrrverandi þjófar og betlarar urðu auðmjúkir, kærleiksríkir og brennandi í trúnni. Margir fóru út á göturnar og predikuðu fyrir fólki.
Einn af drengjunum, Li Shu Yi, var þá níu ára. Hann túlkaði það sem hinir sögðu af mállýskunni sem þeir töluðu og Baker skrifaði það niður. Úr þessu varð bókin Visions Beyond the Veil. Li Shu Yi varð síðar einn nánasti samstarfsmaður Bakers og fylgdi honum í mörg ár.
Matteusarguðspjall 19:14
En Jesús sagði: "Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi, því að slíkra er himnaríki."
Gangandi trúboði
Árið 1929 byrjaði Baker að fara í langar ferðir fótgangandi upp í fjöllin til að predika fyrir Ka Do þjóðinni sem enginn hafði náð til með fagnaðarerindið. Hann var oft í burtu mánuðum saman. Árið 1935 fluttu hjónin alfarið þangað, sautján daga ferð frá Kunming. Hann gekk frá þorpi til þorps og þúsundir manna komu til trúar á Jesú. Á endanum hafði hann umsjón með um fjörutíu söfnuðum. Hann skrifaði um það í bókinni God in Ka Do Land.
Árið 1950, eftir að kommúnistar tóku völdin í Kína, neyddust hjónin til að yfirgefa landið. Þau fluttu síðar til Taívan og þjónuðu þar til æviloka. Baker gekk allra sinna ferða fótgangandi fram undir nírætt og hélt áfram að skrifa. Hann fór heim til Drottins árið 1971.
Arfurinn
Sonarsonur hans, Rolland Baker, fæddist í Kunming og ólst upp við sögurnar af Adullam. Hann og eiginkona hans, Heidi Baker, stofnuðu Iris Ministries sem hefur tekið að sér þúsundir munaðarlausra barna í Mósambík og víðar. Rolland segir að það sem afi hans gerði hafi mótað allt þeirra starf. Fræið sem sáð var í Kunming heldur áfram að bera ávöxt.
Ég trúi því að saga Adullam minni okkur á að Guð fer ekki í manngreinarálit. Hann opinberaði himnaríki ekki fyrir fræðimönnum og prestum heldur fyrir litlum betlidrengjum sem enginn vildi. Hann leitar að þeim sem eru auðmjúkir og hungraðir, og þannig hjörtu getur hann fyllt.
Ert þú tilbúinn?
Jesús sagði að nema við snúum við og verðum eins og börn komumst við ekki inn í himnaríki. Komdu til hans eins og barn, með opið hjarta og einfalda trú, og biddu hann um að opna augu þín fyrir því sem hann hefur búið þeim sem elska hann.
„Verið minnugir leiðtoga yðar, sem Guðs orð hafa til yðar talað. Virðið fyrir yður, hvernig ævi þeirra lauk, og líkið eftir trú þeirra. Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami og um aldir.“ Heb 13:7-8
