Heimahópur

Endurkoma Jesú | Snorri Óskarsson

Endurkoma Jesú | Snorri ÓskarssonSigurður Júlíusson

Endurkoma Jesú Krists

Snorri Óskarsson | 30. nóvember 2025

Heimahópurinn 30. nóv 2025

Við fengum góðan gest til að koma og flytja kennslu úr Orðinu síðastliðinn fimmtudag eða Snorra Óskarsson. Þið getið hlustað á kennsluna með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan. Kennslan var um endurkomu Jesú Krists og hvernig við getum lesið í táknin sem Biblían gefur okkur varðandi þessa tíma.

Matteusarguðspjall 24:3

Þá er hann sat á Olíufjallinu, gengu lærisveinarnir til hans og spurðu hann einslega: Seg þú oss, hvenær verður þetta? Og hvert mun tákn komu þinnar og endaloka veraldar?

Guð blessi þig!

Ef þig langar að prufa að koma í heimahópinn okkar þá ertu hjartanlega velkomin. Við hittumst á Borg í Grímsnesi klukkan 18:15 alla fimmtudaga. Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um heimilisfang og mögulegt far með trúsystkinum ef þú ert til dæmis í Reykjavík eða nágrenni.

Hebreabréfið 10:25

Vanrækið ekki safnaðarsamkomur yðar eins og sumra er siður, heldur uppörvið hver annan, og það því fremur sem þér sjáið að dagurinn færist nær.

Skráðu þig á póstlistann

Við sendum þér svo tilkynningu þegar nýtt efni kemur á síðuna, ásamt öðrum gagnlegum upplýsingum sem tengjast Ljós í myrkri.