Charles Finney

Charles Grandison Finney var bandarískur lögfræðingur sem varð einn áhrifamesti vakningapredikari í sögu Bandaríkjanna. Á árunum upp úr 1825 fór vakningareldur um New York-ríki og víðar þar sem hann predikaði, og talið er að hundruð þúsunda manna hafi frelsast. Hann var síðar prófessor og rektor Oberlin-háskóla og barðist gegn þrælahaldi. Hann fæddist 29. ágúst árið 1792 í Connecticut og fór heim til Drottins 16. ágúst 1875, 82 ára gamall.
Lögfræðingurinn sem las Biblíuna
Charles ólst upp í sveit í New York-ríki þar sem lítið var um kirkjur og kristna kennslu. Hann var hávaxinn, gáfaður og sjálfstæður og lærði lögfræði hjá lögmanni í bænum Adams. Í lögbókunum rakst hann aftur og aftur á tilvísanir í lögmál Móse, svo hann keypti sér Biblíu til að kynna sér þær. Hann fór að lesa og það sem hann las hreyfði við honum.
Hann fór í kirkju og hlustaði á prestinn en fannst bænasamkomurnar tilgangslausar. Fólk bað og bað um vakningu en ekkert gerðist. Hann spurði hvort það tryði í raun og veru að Guð myndi svara.
Í skóginum
Haustið 1821 ákvað Charles að gera upp við Guð. Að morgni 10. október fór hann út í skóginn fyrir utan bæinn og ætlaði ekki að koma til baka fyrr en hann hefði fundið frið við Guð. Hann reyndi að biðja en orðin komu ekki. Hann heyrði skrjáf í laufunum og stökk upp, hræddur um að einhver sæi hann biðja. Þá sá hann hversu stolt hans var mikið. Hann skammaðist sín fyrir að skammast sín fyrir Guð, gafst upp og hrópaði til Guðs. Friður kom yfir hann.
Um kvöldið, þegar hann var einn á lögmannsstofunni, fylltist hann heilögum anda. Hann lýsti því síðar þannig að það hefði verið eins og bylgjur af fljótandi kærleika hefðu farið í gegnum hann, aftur og aftur, svo að hann hefði á endanum beðið Guð um að stoppa því hann héldi ekki meira út.
Daginn eftir kom skjólstæðingur til hans til að ræða mál sem átti að fara fyrir dóm. Charles svaraði: „Ég hef tekið að mér málflutning fyrir Drottin Jesú Krist og get ekki flutt mál þitt.“ Hann hætti í lögfræðinni og fór að predika.
Brjótið nýtt land
Charles var ekki menntaður prestur og predikaði eins og lögfræðingur fyrir dómstóli. Hann talaði skýrt og beint, eins og hann væri að sannfæra kviðdóm, og krafðist þess að fólk tæki afstöðu þar og þá. Hann kenndi að vakning væri ekki eitthvað sem kæmi bara einhvern tíma ef Guð vildi, heldur að Guð hefði gefið fyrirheit og að fólk gæti leitað hans og búið sig undir hana með iðrun og bæn.
Hósea 10:12
Sáið niður velgjörðum, þá munuð þér uppskera góðleik. Takið yður nýtt land til yrkingar, þar eð tími er kominn til að leita Drottins, til þess að hann komi og láti réttlætið rigna yður í skaut.
Þar sem hann predikaði gerðust ótrúlegir hlutir. Fólk féll á kné í kirkjunum, iðraðist hástöfum og heilu bæirnir breyttust. Það er sagt frá því að hann hafi gengið í gegnum vefnaðarverksmiðju nálægt Utica og fólk við vélarnar hafi farið að gráta og skjálfa yfir syndum sínum, svo að eigandinn stöðvaði verksmiðjuna og bað Charles að predika fyrir starfsfólkinu. Nær allir tóku trú.
Leyndarmálið var bæn
Það sem fæstir vissu var að á bak við Charles stóðu menn sem báðu. Daniel Nash, sem var kallaður faðir Nash, ferðaðist á undan honum í bæina, leigði sér herbergi og bað og grét fyrir fólkinu dögum og vikum saman áður en Charles kom. Annar maður, Abel Clary, bað svo mikið að hann kom sjaldan á samkomurnar sjálfar. Charles vissi vel að vakningarnar komu ekki vegna predikunar hans heldur vegna bænarinnar.
Jakobsbréfið 5:16
Játið því hver fyrir öðrum syndir yðar og biðjið hver fyrir öðrum, til þess að þér verðið heilbrigðir. Kröftug bæn réttláts manns megnar mikið.
Rochester
Haustið 1830 kom Charles til borgarinnar Rochester í New York og predikaði þar í um sex mánuði. Vakningin þar er talin ein sú mesta í sögu Bandaríkjanna. Lögfræðingar, dómarar, læknar og kaupmenn tóku trú ásamt verkamönnum og fátækum. Sagt er að afbrotum í borginni hafi fækkað svo mikið að fangelsið stóð nánast tómt. Vakningin breiddist út frá Rochester um allt svæðið og víðar.
Árið 1835 gaf Charles út bókina Lectures on Revivals of Religion (Fyrirlestrar um vakningu) sem hefur haft áhrif á vakningarpredikara æ síðan, meðal annars í Wales og á Englandi.
Oberlin
Árið 1835 varð Charles prófessor í guðfræði við nýjan háskóla í Oberlin í Ohio og síðar rektor hans. Oberlin var einn af fyrstu háskólum Bandaríkjanna sem tóku við bæði konum og svörtum nemendum. Charles barðist harðlega gegn þrælahaldi og neitaði að gefa þeim sem héldu þræla altarisgöngu. Hann trúði því að raunveruleg iðrun hlyti að breyta því hvernig fólk lifði og kæmi fram við aðra.
Hann predikaði og kenndi fram á síðustu ár ævi sinnar og lést í Oberlin 16. ágúst 1875, nokkrum dögum fyrir 83 ára afmælið sitt.
Ég trúi því að það sem við getum lært mest af Charles Finney sé að hann tók Guð á orðinu. Hann trúði því að ef við biðjum og iðrumst í alvöru mun Guð svara. Og hann vissi að á bak við hverja vakningu stendur fólk sem biður.
Ert þú tilbúinn?
Vakning byrjar ekki í borginni eða kirkjunni. Hún byrjar í hjarta þínu. Er eitthvað sem þarf að brjóta upp, eitthvað sem þú þarft að gera upp við Guð? Gerðu eins og Charles. Farðu afsíðis og komdu ekki til baka fyrr en þú hefur mætt Guði.
„Verið minnugir leiðtoga yðar, sem Guðs orð hafa til yðar talað. Virðið fyrir yður, hvernig ævi þeirra lauk, og líkið eftir trú þeirra. Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami og um aldir.“ Heb 13:7-8
