Blekking, fagnaðarerindið og djörfung

Blekking, fagnaðarerindið og djörfung
Heimahópurinn 19. nóvember 2026
Í þessari kennslu fór ég yfir allar samsæriskenningarnar sem eru í gangi og hvað það er sem raunverulega skiptir máli. Jesús varaði við því að blekkingin á síðustu tímum yrði svo mikil að hún myndi leiða afvega jafnvel hina útvöldu, ef orðið gæti. Við skoðuðum hvernig við verjumst blekkingu með því að vera stöðug í Orðinu, og hvernig óttinn og áhyggjur þessa lífs geta svæft okkur. Jesús kemur aftur og tíminn er að styttast, og nú er hagkvæm tíð til að boða fagnaðarerindið. Við ræddum líka um djörfungina sem við þurfum til að tala, því Guð segir okkur aftur og aftur í Orðinu að óttast ekki. Í lokin hvatti ég okkur öll til að taka skref í trú og segja öðrum frá Jesú.
Matteusarguðspjall 24:24-25
Því að fram munu koma falskristar og falsspámenn, og þeir munu gjöra stór tákn og undur til að leiða afvega jafnvel hina útvöldu, ef orðið gæti. Sjá, ég hef sagt yður það fyrir.
Síðara Korintubréf 6:2
Hann segir: Á hagkvæmri tíð bænheyrði ég þig, og á hjálpræðis degi hjálpaði ég þér. Nú er hagkvæm tíð, nú er hjálpræðis dagur.
Guð blessi þig!
Ef þig langar að prufa að koma í heimahópinn okkar þá ertu hjartanlega velkomin. Við hittumst á Borg í Grímsnesi klukkan 18:15 alla fimmtudaga. Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um heimilisfang og mögulegt far með trúsystkinum ef þú ert til dæmis í Reykjavík eða nágrenni.
Hebreabréfið 10:25
Vanrækið ekki safnaðarsamkomur yðar eins og sumra er siður, heldur uppörvið hver annan, og það því fremur sem þér sjáið að dagurinn færist nær.
