Að treysta Guði

Að treysta Guði
Heimahópurinn 12. nóvember 2026
Í þessari kennslu fór ég yfir hvað það þýðir að treysta Guði. Að trúa á Guð og að treysta Guði er ekki alveg það sama, því traustið er trúin sýnd í verki. Við skoðuðum meðal annars Abraham þegar hann var beðinn um að fórna Ísak, Sadrak, Mesak og Abed-Negó sem sögðu „en þótt hann gjöri það ekki“, og hvernig við getum varpað áhyggjum okkar á Drottin í stað þess að bera þær sjálf. Ég deildi líka vitnisburði úr mínu eigin lífi þar sem virkilega reyndi á traustið, og í lokin ræddum við saman og nokkur úr hópnum sögðu frá því hvernig Guð hefur séð fyrir þeim.
Orðskviðirnir 3:5-6
Treystu Drottni af öllu hjarta, en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit. Mundu til hans á öllum þínum vegum, þá mun hann gjöra stigu þína slétta.
Guð blessi þig!
Ef þig langar að prufa að koma í heimahópinn okkar þá ertu hjartanlega velkomin. Við hittumst á Borg í Grímsnesi klukkan 18:15 alla fimmtudaga. Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um heimilisfang og mögulegt far með trúsystkinum ef þú ert til dæmis í Reykjavík eða nágrenni.
Hebreabréfið 10:25
Vanrækið ekki safnaðarsamkomur yðar eins og sumra er siður, heldur uppörvið hver annan, og það því fremur sem þér sjáið að dagurinn færist nær.
